Ajax, Young Boys og AEK Aþena í riðlakeppni Meistaradeildarinnar Anton Ingi Leifsson skrifar 28. ágúst 2018 21:00 Leikmenn Ajax fagna. Vísir/Getty Ajax, Young Boys og AEK Aþena tryggðu sér öll sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld er liðið unnu einvígi sín í umspili um laust sæti í Meistaradeildinni. Ajax vann fyrri leikinn gegn Dynamo Kyiv með þremur mörkum gegn einu á heimavelli. Í kvöld var ekkert mark skorað í Kyiv og því Ajax komið í næstu umferð. Ajax er með öflugt lið í ár en leikmenn eins og Klaas Jan Huntelaar og Daley Blind eru komnir aftur til Hollands. Það verður fróðlegt að fylgjast með Ajax í vetur. Young Boys frá Sviss náði góðri endurkomu gegn Dinamo Zagreb í Zagreb. Eftir 1-1 jafntefli í fyrri leiknum unnu strákarnir frá Sviss 2-1 sigur í kvöld með tveimur mörkum frá Guillaume Hoarau. Þriðja og síðasta lið kvöldsins til að komast áfram var svo AEK Aþena frá Grikklandi. Þeir gerðu 1-1 jafntefli í síðari leiknum gegn ungverska liðinu Vidi FC og fóru því samanlagt áfram 3-2. Meistaradeild Evrópu
Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Sport
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn