Andri Rúnar: Ekki lélegasta víti sem ég hef tekið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. janúar 2018 18:15
Andri Rúnar Bjarnason spilaði sinn fyrsta A-landsliðsleik í dag þegar Ísland mætti Indónesíu ytra. Hann gerði enn betur og skoraði mark í leiknum, sitt fyrsta landsliðsmark, eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu. „Tilfinningin var bara frábær. Ég var með léttan fiðring og mjög spenntur, þetta var bara geðveik tilfinning,“ sagði Andri Rúnar við KSÍ eftir leikinn. „Það var draumi líkast [að skora]. Mikill léttir eftir að vera búinn að klúðra vítaspyrnu að hafa náð að koma til baka og skora. Þetta var ekki lélegasta víti sem ég hef tekið, þetta var ágætlega varið hjá honum, hann má eiga það. En það er aldrei gaman að klúðra víti.“ Aðstæður í Indónesíu voru mjög erfiðar í dag og völlurinn blautur, þá sérstaklega í seinni hálfleik sem Andri spilaði ekki. Hann sagði þó að honum hefði fundist ágætt að fá að spila seinni hálfleikinn líka því hann væri öllu vanur. „Maður er vanur Mýrarboltanum á Ísafirði svo það hefði verið fínt að taka þátt,“ sagði Andri léttur í brag. „Þetta var mjög sérstakt, pollar út um allt og erfiðar aðstæður, en við gerðum virkilega vel í seinni hálfleik og skorum fimm mörk í þessum aðstæðum, sem er virkilega vel gert.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Andri Rúnar er í landsliðshópnum og hann er ánægður með móttökurnar sem hann fékk frá liðsfélögum sínum. „Þeir hafa tekið manni rosalega vel. Það er léttir að geta komið inn í svona góðan hóp og fallið svona fljótt inn. Það er mjög jákvætt og mjög skemmtilegt, mikill heiður að vera með þeim,“ sagði Andri Rúnar Bjarnason.
Fótbolti Mest lesið Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Wirtz strax kominn á hættusvæði Enski boltinn Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Enski boltinn „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Handbolti Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Enski boltinn Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Enski boltinn Féll fimm metra við að fagna marki Fótbolti Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Körfubolti „Ætla ekki að segja það í þessu viðtali“ Fótbolti Leik hætt þegar áhorfendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Breiðablik - Virtus | Hálfur milljarður undir í umspilinu Í beinni: Þór/KA - FHL | Tekst nýliðunum að tengja saman sigra? Í beinni: Stjarnan - FH | Nágrannaslagur í Garðabænum Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði „Við erum ekki undir neinni pressu“ Horsens vill fá Guðlaug Victor „Hefur ekki tíma til að fara of langt niður“ Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins „Af hverju er Tómas Orri ekki að að spila í Breiðabliki?“ Leik hætt þegar áhorfendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum „Ætla ekki að segja það í þessu viðtali“ Wirtz strax kominn á hættusvæði Martröð á fyrstu æfingu í Róm Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Féll fimm metra við að fagna marki Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Lést aðeins 39 ára: Bað þjóð sína um hjálp Norska liðið í miklu stuði en dramatík hjá Dönunum Ólafur Kristjáns: Þá vitum við að hún er ekkert að grínast Arsenal að stela Eze frá Tottenham Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Markvörður Fluminense tók heimsmetið af Peter Shilton Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Diljá innsiglaði sigur toppliðsins Sjá meira