Leikstjórinn Börkur Sigþórsson mun leikstýra þremur þáttum í nýrri spennuþáttaröð fyrir BBC. Sagt er frá þessu í Menningunni á RÚV. Börkur leikstýrir fyrstu þremur þáttunum af sex en þættirnir nefnast Baptiste.
Þáttaröðin Babtiste er afleggjari af þáttunum vinsælu The Missing. „Þetta eru glæpaþættir, gerast í Amsterdam og þarna fylgjumst við með lífi og störfum Julian Baptiste,“ segir Börkur í samtali við RÚV. Hann segir að það hafi meðal annars verið fyrir tilstilli Ólafs Darra Ólafssonar leikara að hann fékk þetta spennandi verkefni.
Í næstu viku verður spennumyndin Vargur frumsýnd en þetta er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Börkur leikstýrir. Börkur er þó enginn nýgræðingur og hefur áður getið sér gott orð fyrir verðlaunastuttmyndir sínar og sem einn af leikstjórum Ófærðar en hann vinnur þessa dagana að annarri þáttaröð.

