Nóg til í bankanum hjá Arsenal │ Chelsea skuldar 800 milljónir Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. janúar 2018 09:00 Forráðamenn Arsenal fara hlæjandi í bankann á hverjum degi vísir/getty
Manchester City er það félag sem hefur mest fjárhagslegt veldi í heiminum, samkvæmt rannsókn Soccerex Football Finance 100. Rannsóknin raðar bestu liðum heimsins niður miðað við fjárfestingar, eigið fé, skuldir og frammistöðu á fótboltavellinum. Það þarf því ekki að koma á óvart að City toppi þennan lista, þar sem liðið hefur aðeins tapað fjórum stigum í ensku úrvalsdeildinni til þessa og er mjög vel stætt fjárhagslega. Hins vegar er óvænt hvaða lið situr í öðru sæti, en Arsenal vermir það. Samkvæmt rannsókninni á Arsenal 766 milljónir punda í föstum fjárfestingum eftir að liðið færði heimavöll sinn af Highbury og á Emirates. Ekkert félag í heiminum á eins mikið fé í fjárfestingum. Aðeins eitt félag á meira eigið fé inn á bankabók en Arsenal, Manchester United. Þar munar þó ekki miklu, United á 307 milljónir punda en Arsenal 300 milljónir. Þá er Arsenal með minnstu skuldir allra félaga á Englandi, aðeins 8 milljónir punda. Englandsmeistarar Chelsea toppa hins vegar þann lista en þeir skulda 800 milljónir punda. Skýrslan segir því að Arsenal ætti vel að geta gert stór kaup á leikmannamarkaðinum. „Staða Arsenal á listanum endurspeglar fagmennsku félagsins og heilbrigt viðskiptamódel þess,“ segir í skýrslunni.Efstu 20 lið skýrslunnar: Manchester City Arsenal PSG Guangzhou Evergrande Tottenham Real Madrid Manchester United Juventus Chelsea Bayern Munich Zenit St Petersburg RB Leipzig LA Galaxy Atletico Madrid Liverpool Borussia Dortmund Lyon Monaco Leicester
Fótbolti Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Fram - Stjarnan | Losnar Fram úr fallbaráttunni? Víkingur - Grindavík/Njarðvík | Kemst Víkingur úr botnsætinu? Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Sjá meira