Mourinho: Það vita allir hversu góður Paul Pogba er Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2018 13:00 Paul Pogba var léttur þrátt fyrir að þurfa að dúsa á varamannabekknum um helgina. Vísir/Getty
Jose Mourinho notaði Paul Pogba ekki í eina sekúndu í leik Manchester United í ensku úrvalsdeildinni en portúgalski stjórinn talaði engu að síður vel um frönsku stórstjörnuna sína eftir leikinn. United vann 4-1 sigur á Fulham um helgina en þetta var annar leikurinn í röð þar sem Paul Pogba er á varamannabekknum. Sjónvarpmyndavélarnar voru duglegar að mynda Frakkann á meðan leiknum stóð. Paul Pogba hefur aðeins spilað 15 mínútur í síðustu tveimur leikjum á móti Arsenal og Fulham en báðir leikirnir voru á Old Trafford.JOSE BACKS POGBA Jose Mourinho has backed Paul Pogba to show "everybody how good he is" when Manchester United face Valencia in the Champions League. Read Jose's reasoning here: https://t.co/eKMuxkf916pic.twitter.com/S0S7Nw6crR — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) December 10, 2018„Hann verður að spila með sama hugarfari og liðið hans. Paul getur orðið frábær leikmaður. Hann hefur allt til alls til að verða frábær leikmaður,“ sagði Jose Mourinho. Paul Pogba fær að spila í Meistaradeildinni í vikunni en þar hefur Manchester United liðið þegar tryggt sig áfram. United er tveimur stigum á eftir toppliði Juventus fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. Bæði lið eru á útivelli, Juventus heimsækir Young Boys til Sviss en Manchetser United spilar á Spáni á móti Valencia. „Hann verður í byrjunarliðinu á móti Valencia og mun þá eiga frábæran leik og sýna öllum hversu góður hann er. Það vita allir hversu góður Paul Pogba er,“ sagði Mourinho. Hann virðist þó að vera senda Pogba skilaboð. „Þú verður að vera með lið sem er með góðan skilning á stöðum sínum, leikmenn sem eru tilbúnir til að pressa og hafa ástríðu fyrir að pressa boltann. Ég tel að þessir tveir leikmenn, Matic og Herrera, hafa báðir virkilega gott hugarfar,“ sagði Mourinho. Það er líka ekki hægt að kvarta mikið yfir Manchester United liðinu á móti Fulham þar sem liðið vann mjög sannfærandi 4-1 sigur.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira