Annar sigur Newcastle í röð Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. nóvember 2018 17:10 Rondon skoraði tvisvar fyrir Newcastle vísir/getty
Newcastle vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni þegar Bournemouth mætti í heimsókn. Í síðustu viku vann Newcastle sinn fyrsta leik með 1-0 sigri á Watford. Liðið kom fullt af sjálfstrausti inn í leikinn við Bournemouth og var komið með forystuna eftir aðeins sjö mínútur. DeAndre Yedlin átti fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Salomon Rondon skoraði í annari tilraun eftir að Asmir Begovic varði fyrsta skotið hans. Rondon tvöfaldaði forystuna á 40. mínútu áður en Jefferson Lerma minnkaði muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir fyrirgjöf Ryan Fraser. Ekkert mark kom í seinni hálfleik og annar sigur Newcastle raunin. Huddersfield og West Ham skildu jöfn í Huddersfield. Bæði lið þurftu á stigi að halda en geta nagað sig í handarbökin yfir því að hafa ekki skorað sigurmarkið og tekið öll þrjú. Alex Pritchard kom Huddersfield yfir snemma leiks og lengi vel leit út fyrir að þeir næðu að hanga á stigunum þremur en Felipe Anderson jafnaði metin þegar um korter var eftir af leiknum og þar við sat. Á suðurströndinni gerðu Southampton og Watford einnig 1-1 jafntefli. Jose Holebas bjargaði stigi fyrir Watford með marki á 82. mínútu eftir að Manolo Gabbiadini kom Southampton yfir á 20. mínútu. Charlie Austin virtist hafa komið Southampton í 2-0 á 66. mínútu leiksins en mark hans var dæmt ógilt. Það virðist sem dómarinn hafi verið þeirrar skoðunar að Maya Yoshida væri rangstæður og truflaði Ben Foster í markinu eða komið við boltann. Ekki eru allir þó sammála þeim dómi. Því verður þó ekki breytt og lokatölur leiksins 1-1 jafntefli.
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira