Manchester City og Bayern Munchen standa uppi sem sigurvegarar í sínum riðlum. Þetta varð ljóst eftir að lokaumferðin í Meistaradeildinni kláraðist í kvöld.
Ajax og Bayern gerðu stórkostlegt 3-3 jafntefli í E-riðilinum en með jafnteflinu tryggir Bayern sér riðilinn. Leikurinn var hin mesta skemmtun en hann bauð upp á sex mörk og tvö rauð spjöld.
Robert Lewandowski kom Bayern yfir en tvö mörk frá Dusan Tadic í síðari hálfleik komu heimamönnum yfir. Robert Lewandowski jafnaði metin þremur mínútum fyrir leikslok af vítapunktinum af vítapunktinum og allt jafnt.
Fyrir síðara mark Tadic höfðu tvö rauð spjöld farið á loft. Maximilian Woeber fékk rautt spjald og það fékk einnig Thomas Muller fyrir glórulausa tæklingu.
Kingsley Coman kom Bayern yfir í uppbótartíma eftir skelfileg mistök en Argentínumaðurinn Nicolas Tagliafico jafnaði metin á fjórðu mínútu uppbótartíma. Lokatölur 3-3.
Benfica vann 1-0 sigur á AEK í hinum leik riðilsins en markið skoraði Alex Grimaldo skömmu eftir að Konstantinos Galanopoulos hafði fengið rautt spjald í liði AEK. Bayern vinnur riðilinn, Ajax í öðru, Benfica í þriðja og AEK á botninum.
Í F-riðlinum vann Manchester City 2-1 heimasigur á Hoffenheim. Hoffenheim komst yfir með marki Andrej Kramaric úr vítaspyrnu en Leroy Sane tryggði City sigurinn með tveimur mörkum.
Í hinum leik riðilsins gerðu Shaktar og Lyon 1-1 jafntefli í úrslitaleik um hvort liðið myndi fylgja City áfram. Junior Moraes kom Shaktar yfir en Nabil Fekir jafnaði fyrir Lyon í síðari hálfleik og skaut þeim áfram.
City endar í fyrsta sæti riðilsins með þrettán stig. Lyon er komið í 16-liða úrslitin eftir að hafa lent í öðru sætinu en Shaktar endar í þriðja sætinu og Hoffenheim endar á botninum.
Öll úrslit dagsins:
E-riðill:
Ajax - Bayern 3-3
Benfica - AEK 1-0
F-riðill:
Man. City - Hoffenheim 2-1
Shaktar - Lyon 1-1
G-riðill:
Real Madrid - CSKA Moskva 0-3
Viktoria Plzen - Roma 2-1
H-riðill:
Valencia - Man. United 2-1
Young Boys - Juventus 2-1
City og Bayern unnu sína riðla │Öll úrslit dagsins

Tengdar fréttir

United og Juventus töpuðu bæði
Juventus vinnur því riðilinn.

Arnór skoraði og gaf stoðsendingu í sigri á Real Madrid │Sjáðu markið
Magnaður sigur hjá CSKA Moskvu á Spáni í kvöld og ekki var hann síðri leikurinn hjá Skagamanninum unga.

Faðir Arnórs: Hélt sýningu fyrir alla fjölskylduna
Pabbinn var eðlilega stoltur af stráknum.