Freyr: Reynir á liðið andlega eftir rússíbanann í sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2017 19:00 Freyr segir færeyska liðið á uppleið. vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því færeyska í fyrsta leik sínum í undankeppni HM á mánudaginn. En er þetta nýtt upphaf eftir vonbrigðin á EM í sumar? „Nýtt upphaf, aðallega það,“ sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson í samtali við Vísi fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í dag. Freyr segir að færeyska liðið sé á uppleið. „Þær eru grjótharðar og það er mikil stemmning í kringum þær. En þær eru á eftir okkur varðandi á hvaða „standard“ þær hafa verið á síðustu ár. Þær eru mjög spenntar að koma hingað og spila við Ísland og mæta dýrvitlausar til leiks. Við þurfum að vera á tánum,“ sagði Freyr. En er eitthvað sem þarf að varast í leik Færeyja? „Við þurfum að ná okkar besta leik og þá eiga úrslitin að detta með okkur. Við megum ekki láta þær slá okkur út af laginu með ákefð og látum. Þær spila stundum svolítið gróft og við þurfum að vera tilbúin í slagsmál.“ Íslandi gekk mjög vel gegn lakari liðum í undankeppni EM og vann alla þá leiki örugglega og án þess að fá á sig mark. „Þetta hefur gengið vel en þetta er ekki sjálfsagt. Við þurftum að hafa fyrir því að ná þeim árangri. Það reynir á okkur andlega eftir rússíbanann í sumar. Við þurfum að mæta einbeitt til leiks og ná sigri,“ sagði Freyr sem kveðst ánægður með ástandið á íslenska hópnum. „Það er mjög gott. Það er ekkert hnjask og kraftur í þeim. Æfingin í gær var frábær og það er sjaldan sem ég hef fengið þær svona ferskar.“
Fótbolti Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Sjá meira