Eiginkona árásarmannsins í London: „Ég er leið og í áfalli“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. mars 2017 09:01 Khalid Masood. Vísir/AFP
Eiginkona Khalid Masood, mannsins sem gerði hryðjuverkaárás við þinghúsið í London í liðinni viku, segir að hún sé leið og í áfalli vegna árásarinnar. Þá fordæmir hún gjörðir eiginmanns síns en konan, sem heitir Rohey Hydara, sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að móðir Masood, Janet Ajao, tjáði sig um árásina. Í yfirlýsingu Hydara, sem hafði búið með Masood frá árinu 2010, segir hún: „Ég er leið og í áfalli yfir því sem Khalid gerði. Ég fordæmi gjörðir hans að öllu leyti, samhryggist fjölskyldum þeirra sem létust og óska þeim sem slösuðust skjóts bata. Þá óska ég eftir því að einklíf fjölskyldunnar verði virt, ekki síst barnanna, á þessum erfiðu tímum.“ Lögreglan í London sagði í gær að Masood hefði haft greinilega áhuga á öfgahópum tengdum íslam og að aðferðir hans væru í anda þess sem leiðtogar hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkið hefðu boðað. Aftur á móti eru engar sannanir fyrir því að Masood hafi rætt undirbúning árásarinnar við nokkurn mann en lögreglan hefur biðlað til þeirra sem gætu hafa rætt við hann daginn sem árásin var gerð að gefa sig fram. „Ef þú heyrðir frá honum þann 22. mars vinsamlegast gefðu þig fram. Upplýsingarnar sem þú býrð yfir gætu reynst mikilvægar til þess að komast að því hvernig honum leið.“ Masood myrti fjóra í árásinni og slasaði tugi manna. Sjálfur var hann skotinn til bana af lögreglumanni í garði breska þinghússins.
Tengdar fréttir Segja samfélagsmiðla þurfa að gera meira gegn öfgum „Illskan blómstrar þegar góðir menn eru aðgerðarlausir og það er að gerast í þessu tilfelli.“ 26. mars 2017 08:51 Árásarmaðurinn var einn að verki Lögregluyfirvöld í Lundúnum staðfestu þetta fyrr í kvöld. 25. mars 2017 23:44 Móðir árásarmannsins í London harmi slegin vegna ódæðisverka sonar síns "Ég hef fellt mörg tár vegna fórnarlamba þessa ódæðis sonar míns,”segir Janet Ajao, móðir Khalid Masood, árásarmannsins sem varð fjórum að bana við þinghúsið í Lundúnum á miðvikudag. 27. mars 2017 22:29 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira
Segja samfélagsmiðla þurfa að gera meira gegn öfgum „Illskan blómstrar þegar góðir menn eru aðgerðarlausir og það er að gerast í þessu tilfelli.“ 26. mars 2017 08:51
Árásarmaðurinn var einn að verki Lögregluyfirvöld í Lundúnum staðfestu þetta fyrr í kvöld. 25. mars 2017 23:44
Móðir árásarmannsins í London harmi slegin vegna ódæðisverka sonar síns "Ég hef fellt mörg tár vegna fórnarlamba þessa ódæðis sonar míns,”segir Janet Ajao, móðir Khalid Masood, árásarmannsins sem varð fjórum að bana við þinghúsið í Lundúnum á miðvikudag. 27. mars 2017 22:29