Tilkynningarskyldan gengur fyrir trúnaðarskyldunni í hugsanlegum ofbeldismálum Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 24. júlí 2017 06:00 Þórólfur Guðnason, settur landlæknir. VÍSIR/SKJÁSKOT
Þórólfur Guðnason, settur landlæknir, segir ekki tímabært að svara spurningum um mál barnageðlæknisins sem vísbendingar eru um að hafi látið hjá líða að tilkynna grun um alvarlegt kynferðisofbeldi gegn barni sem hann hafði til meðferðar, fyrr en fjallað hefur verið um málið með formlegum hætti innan Embættis landlæknis. Þann 17. júlí síðastliðinn sendi Barnaverndarstofa frá sér tilkynningu þess efnis að hún myndi rannsaka sérstaklega viðbrögð starfandi barnageðlæknis á svæðinu í máli karlmanns sem dæmdur var fyrr í mánuðinum fyrir kynferðisbrot gegn þremur barnabörnum sínum. Í áðurnefndum dómi komi fram að starfandi barnageðlæknir á svæðinu hafi haft rökstuddan grun um alvarleg brot gegn einum af brotaþolunum. Legið hafi fyrir læknabréf, sem sé eitt af sönnunargögnum málsins, þar sem fram komi að læknirinn hafi búið yfir nákvæmum upplýsingum um langvarandi kynferðisofbeldi gegn ákveðnu barni. Þórgunnur Ársælsdóttir, formaður Geðlæknafélags Íslands, vill ekki tjá sig um þetta tiltekna mál en segir í samtali við Fréttablaðið að tilkynningarskylda um hugsanlegt ofbeldi gegn barni gangi alltaf fyrir trúnaðarskyldu lækna og það sama gildi að sjálfsögðu um geðlækna. „Geðlæknar hafa ótvíræða skyldu til að senda tilkynningu um slíkan grun til barnaverndaryfirvalda,“ segir Þórgunnur. Lögum samkvæmt ber landlækni að áminna heilbrigðisstarfsmann sem vanrækir starfsskyldur sínar, eða brýtur í bága við ákvæði í heilbrigðislöggjöf landsins. Þá getur landlæknir svipt heilbrigðisstarfsmann starfsleyfi sínu án áminningar ef hann brýtur alvarlega gegn starfsskyldum sínum, svo sem með því að sýna alvarlegt hirðuleysi í störfum sínum eða með öðru atferli sem fer í bága við lög.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands Sjá meira