Talið að fanginn hafi klifrað yfir tveggja metra háa girðingu Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 21. júlí 2017 15:00 Guðmundur segir í samtali við Vísi að fanginn hafi örugglega átt fullt í fangi með að fela sig þann tíma sem hann var í burtu frá fangelsinu. Þá hafi þetta ekki atvikast eins og í bandarískri bíómynd þar sem fangar grafa sér göng í gegnum fangelsisveggina. Vísir/Stefán
Fanginn sem strauk úr fangelsinu á Akureyri í gærdag hafði verið að aðstoða við garðvinnu út á lóðinni sem tilheyrir lögreglustöðinni á Akureyri þegar hann greip tækifærið og lét sig hverfa. Lögreglustöðin er samtengd við fangelsið. Fangavörður leit af honum í smá stund og á þeim tíma er talið að honum hafi tekist að klifra eða hoppa yfir um það bil tveggja metra háa girðingu sem umkringir garðinn. Maðurinn var í burtu frá hálf fimm til tæplega ellefu um kvöld. Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsisins á Akureyri, segir í samtali við Vísi að girðingin sé ekki mannheld. Þá sé engum hættulegum fanga leyft að fara út á þetta svæði.Einangrun líklega beittFanginn á mögulega yfir höfði sér einangrun, sem er einn hlut af agaviðurlögum sem beitt er þegar fangar brjóta reglur. „Samkvæmt lögum þarf að ákvarða honum agaviðurlög sem venjulega er einangrun þegar um strok er að ræða,“ segir Guðmundur. Þá mun þetta einnig hafa áhrif á hans möguleika í afplánun, hann muni ekki geta fengið dagsleyfi í ákveðinn tíma. Þá gæti þetta einnig haft áhrif á möguleika hans á reynslulausn. Guðmundur segir að maðurinn hafi ekki átt langan tíma í afplánun eftir.Einbeitti sér að því að fela sigEkki er búið að yfirheyra fangann eftir þetta. Aðspurður hvað hann hafi verið að gera á meðan hann var á flótta segir Guðmundur að hann hafi líklegast verið að einbeita sér að því að fela sig. Þau hafi síðan fengið ábendingu um það hvar hann væri og var hann handtekinn fyrir framan kvikmyndahúsið á Akureyri. Guðmundur segir að verið sé að endurskoða ferla hjá fangelsinu eftir atvikið. Hann nefnir að atvik sem þetta sé alls ekki algengt.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira