Diego Costa: Chelsea vill losna við mig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2017 08:15 Diego Costa bendir á Chelsea-merkið. Vísir/Getty
Diego Costa, framherji Chelsea, raðaði inn mörkum á tímabilinu og átti mikinn þátt í að Chelsea varð enskur meistari á ný. Hann er hinsvegar ekki inn í framtíðarplönum knattspyrnustjórans Antonio Conte. Diego Costa er bara 28 ára gamall og skoraði 20 mörk í 35 leikjum með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur en nú lítur út fyrir að hann sé á förum frá Stamford Bridge. „Ég er leikmaður Chelsea en þeir vilja samt ekki hafa mig lengur,“ sagði Diego Costa í viðtali við BBC. „Antonio Conte sendi mér skilboð um að ég yrði ekki áfram hjá Chelsea. Conte sagði að hann ætlaði ekki að reikna með mér á næstu leiktíð,“ sagði Costa. „Samband mitt og stjórans hefur verið slæmt á þessu tímabili. Það er synd. Ég er þegar búinn að áframsenda skilaboðin til fólksins hjá Chelsea svo þau geti fundið út úr þessu,“ sagði Costa. Diego Costa kom til Chelsea frá Atletico Madrid fyrir 32 milljónir punda árið 2014 en hafði þá spilað fjögur tímabil með spænska liðinu. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Atletico Madrid en það gæti verið erfitt því félagið má ekki semja við nýja leikmenn fyrr en í janúarglugganum. „Fimm mánuðir án þess að spila. Ég veit ekki. Þetta er flókið en fólk veit að ég elska Atletico mikið og væri meira en til í það að búa aftur í Madrid. Það væri gott að koma aftur en það er erfitt að geta ekki spilað í fjóra eða fimm mánuði. Þetta er HM-ár og margt að hugsa um. Ég þarf að spila,“ sagði Diego Costa.
Enski boltinn Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira