„Það gengur vel að kynna og selja myndina erlendis og við höfum verið að fá góðar fréttir sem ég má ekki segja frá opinberlega að svo stöddu, en ég get lofað mjög sterkri bíóupplifun þar sem fólk fær að kynnast nýjum hliðum á mörgum af ástsælustu leikurum landsins. Steindi og Edda eru t.a.m. algjörlega frábær í sínum hlutverkum án þess að hallað sé á aðra leikara myndarinnar,“ segir Hafsteinn sem hefur áður sent frá sér myndirnar Á annan veg og París norðursins.
Með aðalhlutverk í Undir trénu fara Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi), Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Selma Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Lára Jóhanna Jónsdóttir. Framleiðendur eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films.

Atli flytur inn á foreldra sína (Siggi Sigurjóns, Edda Björgvins) sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi (Þorsteinn Bachmann, Selma Björns). Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðin langþreytt á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.
Undir trénu verður frumsýnd þann 23. ágúst eins og áður segir. Hér fyrir neðan má sjá myndir sem voru teknar á bak við tjöldin við tökur myndarinnar.
Ljósmyndir Brynjar Snær.
Posted by Undir trénu / Under the Tree on Wednesday, June 28, 2017
Á Facebook-síðu myndarinnar er síðan hægt að fylgjast með framvindu mála þegar nær dregur frumsýningu og er þar meðal annars verið að gefa bíómiða.
Undir trénu - Trailer / StiklaLangar þig á hátíðarforsýningu kvikmyndarinnar Undir Trénu þann 16. ágúst? Við ætlum að gefa 10 miða, hver miði gildir fyrir tvo. Lækaðu og taggaðu vin sem þú vilt taka með á rauða dregilinn. Við drögum út föstudaginn 7. júlí.
Posted by Undir trénu / Under the Tree on Thursday, June 29, 2017