Erlent

Flokkar sem styðja sjálfstæði Katalóníu myndu tapa meirihluta

Kjartan Kjartansson skrifar
Andstæðingar sjálfstæðis Katalóníu hafa yfirhöndina í fyrstu skoðanakönnuninni eftir að boðað var til héraðsþingskosninga.
Andstæðingar sjálfstæðis Katalóníu hafa yfirhöndina í fyrstu skoðanakönnuninni eftir að boðað var til héraðsþingskosninga. Vísir/AFP
Ný skoðanakönnun bendir til þess að þeir flokkar sem styðja sjálfstæðis Katalóníu missi meirihluta sinn á héraðsþingi. Mjótt er þó á mununum á milli sjálfstæðissinna og þeim sem vilja að héraðið verði áfram hluti af Spáni.

Ríkisstjórn Spánar leysti héraðsþingið og stjórnina upp á föstudag í kjölfar nokkurra vikna uppnáms vegna tilrauna leiðtoga Katalóníu til að lýsa yfir sjálfstæði. Boðaði Mariano Rajoy forsætisráðherra til héraðsþingskosninga 21. desember.

Könnunin, sem dagblaðið El Mundo birti, var gerð frá mánudegi til fimmtudags, áður en landsstjórnin svipti Katalóníu sjálfræði. Samkvæmt henni fengju sjálfstæðisflokkar 42,5% en aðrir flokkar 43,4%, að því er kemur fram í frétt Reuters.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×