Erlent

Deildu um Frelsisstyttuna í Hvíta húsinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Stephen MIller, ráðgjafi Donald Trump.
Stephen MIller, ráðgjafi Donald Trump. Vísir/GETTY
Frelsisstytta Bandaríkjanna varð að deiluefni í Hvíta húsinu í gær, eftir að Donald Trump, forseti, kynnti nýtt frumvarp sem gerbreyta á innflytjendalögum ríkisins og byggja þau á hæfnismati innflytjenda. Fækka á löglegum innflytjendum verulega og koma upp stigakerfi sem byggir á innflytjendakerfum Ástralíu og Kanada.

Kerfið mun byggja á stigum, þar sem þeir sem vilja flytja til Bandaríkjanna fá stig fyrir enskukunnáttu, menntunarstig og starfskunnáttu, svo eitthvað sé nefnt.

Blaðamaðurinn Jim Acosta spurði Stephen Miller, ráðgjafa Trump, út í áletrun á Frelsisstyttunni þar sem innflytjendur og aðrir eru boðnir velkomnir. Sagði hann að þar væri talað um fátækt og þrett fólk, en hvergi væri minnst á ensku.

Miller sagði áletruninni hafa verið bætt við styttuna eftir að hún var byggð. Þeir deildu þó meira og Acosta spurði hvort að eingöngu ætti að hleypa inn fólki frá Bretlandi og Ástralíu. Við það móðgaðist Miller verulega fyrir hönd innflytjenda frá öðrum löndum, sem tala þrátt fyrir það ensku.

Sjá má samskipti þeirra hér að neðan.

 

Þegar Trump kynnti frumvarpið í gær sagði hann að Bandaríkin hefðu um áratugaskeið rekið innflytjendastefnu sem miðaði við að bjóða ómenntuðu láglaunafólki ríkisborgararétt. Staðreyndin er hins vegar sú að innflytjendur í Bandaríkjunum eru líklegri til þess að vera með betri menntun en Bandaríkjamenn.

AP fréttaveitan bendir á rannsókn Pew rannsóknarmiðstöðvarinnar frá árinu 2015. Þar kom fram að af innflytjendum síðustu fimm ára voru 41 prósent þeirra með háskólapróf. Um 30 prósent heimamanna eru með slíka menntun.

Um 18 prósent innflytjenda höfðu lokið framhaldsnámi, sem einnig er mun hærra hlutfall en meðal innfæddra Bandaríkjamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×