Lífið

Samvera og útivist dýrmætt veganesti

Vera Einarsdóttir skrifar
Þær Lára og Sigríður eiga samtals fimm drengi á svipuðum aldri sem fá mikla útrás í útivist með fjölskyldunni og koma jafnan endurnærðir heim.
Þær Lára og Sigríður eiga samtals fimm drengi á svipuðum aldri sem fá mikla útrás í útivist með fjölskyldunni og koma jafnan endurnærðir heim.
Þær Lára G. Sigurðardóttir læknir og Sigríður Arna Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur gáfu út bókina Útivist og afþreying fyrir börn árið 2012. Þær fylgja henni nú eftir með Reykjavik With Kids, sem kom út fyrir skemmstu. Eftir útgáfu fyrri bókarinnar opnuðu þær vefsíðuna utipukar.is þar sem þær benda á skemmtileg útivistarsvæði og segja frá viðburðum sem henta börnum og ýmsu tengdu barnauppeldi.

„Að upplifa eitthvað nýtt með nákomnum veitir meiri hamingju sem endist lengur en hamingja sem er keypt með skóm eða nýjum síma,“ segir Lára.MYND/EYÞÓR
Endurnærandi að fara út

Þær Lára og Sigríður kynntust á sameiginlegum vinnustað. „Við eigum samanlagt fimm orkumikla drengi á svipuðum aldri sem eiga það sameiginlegt að sækja í að sitja fyrir framan tölvuskjá. Ég hafði tekið eftir skapgerðarbreytingu til hins verra ef mínir strákar sátu lengi við og vildi ekki að tölvuleikjanotkun yrði aðalæskuminningin hjá þeim. Þegar við foreldrarnir reyndum að fara með þá út af heimilinu fannst mér samverustundirnar heldur einsleitar. Það var skipst á að fara í Húsdýragarðinn, sund og ævintýralandið í Kringlunni. Ég tók hins vegar eftir því hve Sigríður var endurnærð eftir hin ýmsu helgarævintýri og fylltist tilhlökkun yfir að fá að slást í för með henni,“ lýsir Lára, en Sigríður hefur stundað útivist um langt skeið og fór fljótt að taka drengina sína með. „Ég tók fljótt eftir því að ólíkt því þegar setið er við tölvuna fengu strákarnir mínir útrás fyrir hreyfiþörfina í náttúrunni og allir komu endurnærðir heim. Við Sigríður urðum sammála um að það væri sniðugt að benda á þá staði sem okkur þótti gaman að heimsækja og þannig hófst samstarfið.“

Lára segir að hún og Sigríður hafi strax náð vel saman. „Við erum báðar menntaðar í heilbrigðisvísindum og það litar eflaust áhugasvið okkar, en okkur þykir báðum mikilvægt að börn alist upp við heilbrigða lífshætti. Í því sambandi jafnast fátt á við að vera úti í náttúrunni sem veitir ró, kraft og hreysti. Við vitum líka að það að upplifa eitthvað nýtt með nákomnum veitir okkur meiri hamingju sem endist lengur en t.d. hamingja sem er keypt með nýjum síma eða skóm. Þá er góður félagsskapur afar mikilvægur heilsunni. Þegar við upplifum eitthvað nýtt með börnunum og gefum þeim alla okkar athygli þá erum við að stuðla að góðri andlegri og líkamlegri heilsu þeirra.

Samverubækur

Í báðum bókum þeirra Sigríðar og Láru eru eins konar uppskriftir að áhugaverðum stöðum til að heimsækja. „Það er góð afþreying að fletta uppskriftabók og fá hugmyndir að góðum mat en það er ekki síðra að fletta samverubók og fá hugmyndir að skemmtilegum samverustundum. Í Reykjavik With Kids höfum við uppfært upplýsingar úr fyrri bókinni okkar og bætt við stöðum, eins og Heimaey sem er alger ævintýraeyja fyrir börn. Við ákváðum líka að hafa hana á ensku enda hefur enskumælandi íbúum hér á landi fjölgað ört og sömuleiðis erlendu ferðafólki. Við vildum ná til þeirra líka. Flestir Íslendingar eru vel læsir á ensku þannig að bókin ætti ekki síður að nýtast þeim. Bókin er hugsuð fyrir alla sem vilja fá hugmyndir að því hvað þeir geta gert með sínum nánustu, hvort heldur er innandyra eða utandyra, í sumarfríi og um helgar.

Bókinni er skipt í níu kafla eftir kennileitum, náttúruperlum, görðum, leiksvæðum, skemmtun/afþreyingu, menningu, fjallgöngum, sundlaugum og dagsferðum frá borginni. Aftast í bókinni er kort sem hjálpar til við að rata.

Hreyfingarleysi er áhyggjuefni

Spurð hvor börn leiki sér minna úti nú en áður segir Lára það því miður vera svo. „Hreyfingarleysi er vaxandi áhyggjuefni því allt að 75% barna fá ekki nægilega mikla hreyfingu, sem miðað er við að þurfi að vara í að minnsta kosti 60 mínútur á dag. Hún segir ekki eins auðvelt að senda börn út að leika í dag og áður því það er yfirleitt nóg af dóti eða raftækjum á heimilum sem halda þeim uppteknum. „Því er gott að fara hreinlega út af heimilinu með þeim. Það brýtur mynstrið upp.“

Að mati Láru er náttúran frábært mótvægi við allt áreitið í umhverfinu því hún hefur streitulosandi áhrif. „Síðan er ómetanleg tilfinning að verða vitni að stolti sem skín úr augum barns sem er að uppgötva eigið afrek, eins og að komast alla leið upp að Steini á Esju. Með því að fara með börnunum út og upplifa eitthvað nýtt þá erum við að sá fræjum sem blómgast kannski ekki strax en með því að hlúa vel að þeim þá munu þau á endanum bera góðan ávöxt.“

Heilsusamlegra fjölskyldulíf

Bókin inniheldur hugmyndir að stöðum til að heimsækja, sem margir hverjir bjóða upp á ævintýralega upplifun í fallegri náttúru. Þær Lára og Sigríður kalla þessa staði uppskrift að hamingjusamara og heilsusamlegra fjölskyldulífi.

Þær nefna nokkur atriði sem skipti máli í útivist með börnum:

1. Leyfa barninu að taka þátt í að velja staðinn. Börnum finnst til dæmis gaman að skoða myndirnar í bókinni og fá þannig tækifæri til að gera eitthvað sem þeim finnst spennandi.

2. Mikilvægt er að laga ferðina að þörfum barnsins, svo sem að stoppa reglulega og hvíla sig og muna að flýta sér hægt.

3. Klæða barnið eftir veðri og aðstæðum. Taka jafnvel með auka­- fatnað, sokka og handklæði.

4. Taka með nesti og nóg að drekka. Það er stór hluti af upplifuninni þegar fjölskyldan sest niður og fær sér nesti saman.

5. Gefum okkur tíma til að upplifa náttúruna með barninu og nota tækifæri til að spjalla um daginn og veginn.

6. Muna svo að útivist er hægt að stunda allt árið. Maður klæðir sig bara eftir veðri.

Nokkrar hugmyndir

Það er mikið framboð af fjölskylduvænum stöðum í Reykjavík og nágrenni sem gaman er að heimsækja með börn. 

Hér eru nokkrar hugmyndir úr bókinni Reykjavik With Kids.

1. Fjallganga er alltaf hressandi og má þar nefna Úlfarsfell, Esju og Mosfell.

2. Fjöruferð er vinsæl hjá börnum og eru Grótta og Álftanesströnd góð dæmi.

3. Hellaskoðun er ævintýraleg og spennandi og eru til dæmis Leiðarendi og Arnarker hentugir.

4. Könnunarleiðangur með nesti á útivistarsvæði svo sem Heiðmörk, Öskjuhlíð eða Elliðaárdal.

5. Sund er alltaf vinsælt hjá börnum og er til dæmis öldulaugin á Álftanesi vinsæl hjá okkar drengjum.

6. Safnaferð er í senn fræðandi og áhugaverð, svo sem Þjóðminjasafnið, Hvalasafnið eða hið Íslenska reðursafn.

7. Bogfimi og klifur vekur mikla kátínu bæði hjá ungum sem eldri.

8. Dagsferð úr bænum í hinar ýmsu náttúruperlur og spennandi staði svo sem Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum, heitu lækina í Reykjadal, Orkuverið Jörð á Reykjanesi eða jafnvel dagsferð til Vestmannaeyja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×