Konur greiða meðlag í auknu mæli Snærós Sindradóttir skrifar 10. apríl 2017 07:00 Börn koma frá ólíkum fjölskyldum. vísir/vilhelm
Konum sem greiða meðlag vegna barna sinna hefur fjölgað um 76 prósent frá aldamótum og hafa nú aldrei verið fleiri. Konur eru nú um sex prósent þeirra sem greiða meðlag vegna barna sinna. Árið 2016 greiddu 727 konur meðlag samanborið við 409 árið 2001. Töluvert stökk var í hlutfalli kvenna á meðal meðlagsgreiðenda árið 2012 en þá fjölgaði konum um 125 á milli ára, og urðu 674 talsins. Síðan hefur konum á meðal meðlagsgreiðenda fjölgað jafnt og þétt. Konur eiga þó ekkert í karla sem greiða meðlag en 10.989 karlar greiða meðlag á Íslandi, samkvæmt tölum frá Innheimtustofnun sveitarfélaga.Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.Á sama tíma hefur einstæðum feðrum fjölgað um tæplega 60 prósent. Árið 2016 voru þeir 1146 talsins en um aldamótin voru þeir 720 talsins. Einstæðum mæðrum hefur á sama tíma fjölgað um 22 prósent sem helst nokkurn veginn í hendur við mannfjöldaþróun en Íslendingum hefur fjölgað um 19 prósent frá aldamótum til ársins 2016, miðað við tölur frá Hagstofu Íslands. „Þetta er svona eitt af fjölmörgu sem sýnir hvernig samfélagið er að breytast á margvíslegan hátt. Ef að fólk er í raun að skipta börnunum jafnt á milli sín þá hlýtur þetta að vera réttlátt en svo þarf auðvitað að taka tillit til launa og aðstöðu foreldra,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. „Meðlagið var tekið upp á sínum tíma, snemma á tuttugustu öldinni, til að tryggja mæðrum að þær hefðu nú eitthvað fyrir sig og börnin sín. Þær voru yfirleitt á miklu miklu lægri launum og margar mjög fátækar. Ég held að þetta beri vott um það að fólk sé í samkomulagi að skipta þessu á milli sín enda er þetta til að tryggja barninu betri aðbúnað.“ Bragi R. Axelsson, hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga, segir að stofnunin finni ekki mun á kvenkyns meðlagsgreiðendum og karlkyns þegar kemur að skilum. Um áramót hafi tólf konur fengið afskrifaða meðlagsskuld, að hluta eða í heild.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira