Flóð í Breiðholti: Tveir dælubílar frá slökkviliðinu komu á svæðið Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 6. ágúst 2017 14:30 Sælökkviliðið er farið af staðnum og tryggingafélög hafa tekið vel. Vísir/Sigurjón
Ægileg úrkoma í Breiðholti olli því að mikið flóð myndaðist í íbúabyggð við Mjóddina. Slökkviliðið sendi tvo dælubíla á svæðið þar sem talsvert regnvatn hefur flætt inn í kjallaraíbúðir. Fyrsta útkallið kom klukkan 11:42 og síðasta útkallið kom nú rétt fyrir klukkan eitt. „Við erum líka með menn frá Fráveitudeild orkuveitunnar á svæðinu og þeir eru að reyna að finna út hver sé orsökin fyrir því að þetta skili sé ekki í fráveitukerfið, hvort það sé bilun eða stífla,“ sagði Sigurður Lárus Fossberg, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á Höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hann segir að töluverðar skemmdir séu á svæðinu. „Það eru náttúrulega töluverðar skemmdir á þessu húnsæði sem vatn hefur flætt inn í,“ segir Sigurður Lárus. Tryggingafélög hvers og eins hafa tekið við málinu.Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands.Vísir/VilhelmHulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatrygginga, segir í samtali við Vísi að þau hafi ekki fengið fregnir af flóðinu í Breiðholti. „Almennt tryggjum við ekki regnvatn nema það sé hlaup í ám og lækjum en ég get ekki svarað því afdráttarlaust nema vita allar aðstæður. Við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um þetta. En ef það er bara þannig að þetta er úrhellis rigning og holræsin hafa ekki undan þá er það almennt ekki tryggt hjá okkur,“ segir Hulda. Hún leggur áherslu á það að hún geti ekki gefið neitt lokasvar enda þekki hún ekki aðstæður.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira