Stólar rákust saman í lyftu í Bláfjöllum Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2017 19:57 Stóllinn rann á vírnum og lenti á næsta stól fyrir aftan. Vísir/Sindri Reyr
Stólalyftunni Gosa í Bláfjöllum var lokað nú síðdegis eftir að einn stólanna losnaði á vírnum og rann aftur á annan stól. Framkvæmdastjóri Skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir fáa hafa verið í lyftunni þegar stóllinn rann og engan hafi sakað. Atvikið átti sér stað um kl. 18 þegar starfsmenn voru nýbúnir að færa stóla til á lyftunni, að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóra Skíðasvæðanna. Stólarnir eru reglulega færðir til á virnum og segir Magnús að þeir renni stundum til ef þeir hafa ekki verið hertir nógu vel eða festingar brotna. Það komi hins vegar yfirleitt í ljós þegar lyftan er látin rúlla af stað mannlaus til að byrja með. Fáir voru í lyftunni þegar stóllinn rann til. Enginn sat í stólnum sem rann, né stólnum fyrir aftan sem stóllinn rann á. Magnús leggur áherslu á að enginn hafi verið í hættu þegar stóllinn rann. Starfsmenn hans segi að stóllinn hafi ekki verið á mikilli ferð þegar hann lenti á stólnum fyrir aftan. Hefði einhver setið í honum hefði hann auðveldlega getað stöðvað stólinn rennandi með fótunum. Þá hafi ekki verið nein hætta á að stóllinn losnaði af vírnum þó að hann hafi runnið aftur á honum. Stólalyftan verður lokuð það sem eftir lifir dags. Farið verður aftur yfir hana á morgun til þess að hún verði tilbúin fyrir helgina. Aðrar lyftur í Bláfjöllum eru enn í fullum gangi, að sögn Magnúsar.Stólarnir í lyftunni vega um 100 kíló að sögn Magnúsar. Sá sem rann var hins vegar ekki á mikilli ferð.Vísir/Sindri Reyr
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira