Rúnar Alex Rúnarsson var á sínum stað í marki Nordsjælland sem gerði jafntefli við Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Það byrjaði ekki vel fyrir Rúnar sem þurfti að sækja boltann í netið eftir aðeins átta mínútna leik.
Nordsjælland jafnaði leikinn á 48. mínutu með marki frá Emiliano Marcondes áður en Michael Lumb varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem kom heimamönnum í 2-1 forystu.
Mikkel Rygaard Jensen lét reka sig af velli á 70. mínútu og þurfti Lyngby því að leika manni færri síðustu tuttugu mínúturnar.
Liðið náði hins vegar að tryggja sér stig með marki frá David Boysen á síðustu mínútum leiksins.
Nordsjælland er fallið niður í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Midtjylland sem vermir toppsæti.
Jafntefli hjá Rúnari Alex
