Undrunin leiðir mig áfram Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. september 2017 09:45 Önnu Líndal verður margt að yrkisefni í myndlistinni. Hún segir flest verka sinna vera viðbragð við einhverju að utan. Vísir/Ernir
Elstu verkin á sýningunni eru beinskeytt þjóðfélagsstúdía á þeim hefðum og venjum sem við höfðum samþykkt að fara eftir. Ákveðið viðbragð við samfélagslegu áreiti. Ég hafði fundið mína leið til að tjá mig,“ segir Anna Líndal, myndlistarmaður og kvenréttindakona, stödd á Kjarvalsstöðum þar sem hún opnar yfirlitssýningu í dag.Heimilisfriður nefnist verkið á gólfinu. Í litlu dúkana hefur Anna saumað út myndir og setningar. Ein setninganna er: Molar eru líka brauð.Heimilisfriður heitir eitt af verkunum og um það segir hún þessa sögu: „Þegar ég dvaldi í vinnustofu í Bergen í Noregi sá ég litla servíettu með handsaumuðum fuglum og korni og setningunni „Molar eru líka brauð“ – á norsku. Mér fannst það mögnuð tilhugsun að konur væru að sauma út í frítíma sínum að þær ættu að sætta sig við mylsnuna í þjóðfélaginu. Ég upplifði það þannig. Upp frá því varð þessi hringur til. Hann er dæmigerður fyrir margt sem kemur til mín út frá undrun. Þannig má segja að undrunin leiði mig áfram.“ Marglit tvinnakefli vekja athygli í öðrum enda salarins. „Ég hélt sýningu 1996 sem hét Kortlagning hversdagslífsins. Þar fjallaði ég mikið um stöðu konunnar og tvinnakeflaverkið er í raun lofsöngur til framlags kvenna í samfélaginu, öll þau ósýnilegu störf sem þær hafa innt af hendi.“Tilbrigði kallar Anna þetta verk. Þar koma þræðir við sögu.Í nýrri verkunum er Anna enn að kortleggja. Nú er það landið. Með Jöklarannsóknafélaginu kveðst hún hafa farið tuttugu og tvo leiðangra upp í Grímsvötn frá árinu 1986 og skráð niðurstöður rannsóknanna með sínum hætti. Meðal annars hefur hún gert sín eigin landakort af svæðinu þar sem hæðarlínurnar eru handsaumaðar með kontórsting og allt sem mælt var með vélknúnu farartæki er markað með sikksakkspori saumavélar.Á heilum vegg er tvinnakeflaverk sem Anna segir lofsöng til framlags kvenna í samfélagið, allra þeirra ósýnilegu starfa sem þær hafa innt af hendi.Form skúlptúrs á gólfinu vísar til vatns og lands sem myndaðist í Grímsvatnagígnum í gosi 2004 og vídeóverk styður við hann. Sömuleiðis fá karlmennirnir sinn óð í vídeóverki. „Ég dáist að hæfileikum karla til að geta gert við hvaða tæki sem er og fengið allt til að virka,“ segir hún brosandi. Í hillum úti á gólfi er Samhengissafnið. Í því eru ýmsir sjaldgæfir hlutir sem tengjast ferðum Önnu um veröldina, þurrkaðar jurtir, skuggamyndir? í poka og fleira forvitnilegt. Safn sem varðveitir ótal sýnishorn úr ýmsum heimshornum og eru vitnisburður um túlkun hennar á umhverfinu.
Menning Mest lesið Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið Forsalan sögð slá öll fyrri met Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið „Burtu með fordóma“ tónleikar á Selfossi 1. maí Lífið Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Lífið Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Tónlist Fleiri fréttir „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira