Real Madrid og Athletic Bilbao skildu jöfn í markalausu jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Spánarmeistararnir náðu ekki að nýta sér það að Barcelona hafði gert jafntefli fyrr í dag og eru því enn átta stigum frá toppsæti deildarinnar.
Fyrirliðinn Sergio Ramos var sendur í sturtu í 24. skipti á ferlinum er hann fékk sitt annað gula spjald á 87. mínútu fyrir brot á Aritz Aduriz.
Madrid var með boltann 65 prósent leiktímans og átti nítján skot, en aðeins fjögur þeirra hittu á rammann.
Markalaust hjá Real
