Innlent

Á tvöföldum hámarkshraða við Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hámarkshraði við flugstöðina er 30 kílómetrar á klukkustund en ökumaðurinn sem var tekinn var á 62 kílómetra hraða.
Hámarkshraði við flugstöðina er 30 kílómetrar á klukkustund en ökumaðurinn sem var tekinn var á 62 kílómetra hraða. Vísir/Valli
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum kært tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur en sá sem hraðast ók var á ferð eftir Reykjanesbraut og mældist á 134 kílómetra hraða á klukkustund. Hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund.

Þó var annar tekinn á rúmlega tvöföldum leyfilegum hraða við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann mældist á 62 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund.

Þá voru nokkrir teknir sem voru að tala í síma án handfrjáls búnaðar og þá reyndist einn þeirra að uaki vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Sá neitaði að gefa sýni á lögreglustöð og var hann því sviptur ökuréttindum til bráðbirgða.

Loks höfðu margir lagt bílum sínum með ólöglegum hætti, fáeinir óku án ökuréttinda og skráningarnúmer voru fjarlægð af bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×