Southgate fékk starfið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2016 16:15 Southgate stýrir enska landsliðinu næstu fjögur árin. vísir/getty
Enska knattspyrnusambandið staðfesti nú rétt í þessu að Gareth Southgate hafi verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins til næstu fjögurra ára. Southgate tók við enska landsliðinu til bráðabirgða eftir að Sam Allardyce sagði af sér í haust. Hann stýrði enska liðinu í síðustu fjórum leikjum þess á árinu. England vann tvo af þessum leikjum og gerði tvö jafntefli. „Ég er gríðarlega stoltur að hafa verið ráðinn landsliðsþjálfari. En ég veit að það er eitt að fá starfið, annað að ná árangri,“ sagði Southgate í fréttatilkynningu frá enska knattspyrnusambandinu. „Ég naut þess að starfa með leikmönnunum í síðustu fjórum leikjum og það eru tækifæri til að gera vel. Ég er staðráðinn í að gefa þjóðinni landslið sem hún getur verið stolt af og nýtur þess að horfa á og vaxa. Vinnan hefst núna.“ Southgate, sem er 46 ára, lék 57 landsleiki og skoraði tvö mörk á árunum 1995-2004. Hann hóf ferilinn með Crystal Palace en lék einnig með Aston Villa og Middlesbrough. Hann tók við síðastnefnda liðinu eftir að hann lagði skóna á hilluna 2006. Southgate stýrði Boro í þrjú ár en var rekinn í október 2009. Hann tók við U-21 árs landsliði Englands 2013 og stýrði því þangað til hann tók við A-landsliðinu. Næsti leikur enska landsliðsins er vináttulandsleikur gegn Þýskalandi í Dortmund 22. mars 2017.
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Sjá meira