Forseti Suður-Kóreu ákærð fyrir embættisbrot Anton Egilsson skrifar 3. desember 2016 12:26 Fjölmenn mótmæli hafa farið fram í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, þar sem krafist er afsagnar forseta landsins. Vísir/EPA
Þingmenn stjórnarandstöðuflokka í Suður-Kóreska þinginu hafa lagt fram ákæru á hendur forseta landsins, Park-Geun-hye, fyrir embættisbrot. Kemur ákæran í kjölfar þess að upp kom að forsetinn væri viðriðinn umfangsmikið spillingarmál. The Guardian greinir frá. Ákæran er studd af 171 af 300 þingmanna Suður-Kóreska þingsins og verður hún lögð til atkvæðagreiðslu næstkomandi föstudag. Til að ákæran verði samþykkt þurfa tveir þriðju þingmanna að samþykkja hana. Svo að hún nái fram að ganga þurfa því 29 meðlimir flokks Park að greiða atkvæði með ákærunni. „Stjórnarflokkurinn verður að taka afleiðingunum embættisákæran verður felld.” Segir Woo Sang-Ho, þingflokksformaður Lýðræðisflokksins í Suður-Kóreu. Park er sökuð um að hafa látið vinkonu sinni í té ýmsar trúnaðarupplýsingar og leyft henni að taka þátt í mikilvægum ákvarðanatökum innan ríkisstjórnarinnar. Vinkonan er sögð hafa nýtt sér þessar upplýsingar til fjárkúgunar, en hún var handtekin í seinasta mánuði. Fjölmenn mótmæli hafa farið fram í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, alla laugardaga seinast liðnar fimm vikur. Fjölmennust voru mótmælin um seinustu helgi en þá er talið að um 1,3 milljónir mótmælenda hafi komið saman til að krefjast afsagnar Park.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira