Ikea biður fólk um að hætta að gista í búðinni Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. desember 2016 07:59 Nokkurs konar tískubylgja fór af stað eftir piltarnir tveir birtu myndbandið á Youtube - við lítinn fögnuð eigendanna. vísir/getty
Ungmenni hafa að undanförnu reynt að eyða nóttunni í Ikea eftir að tveir ungir Belgar birtu myndband af því þegar þeir gistu í versluninni. Rekstraraðilar Ikea hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir biðja fólk um að hætta að reyna að freista þess að gista í búðinni. Belgarnir birtu myndbandið í ágúst og síðan þá hefur Ikea fengið um tíu næturgesti í verslanir sínar víða um heim. Nú nýlega voru það tvær fjórtán ára stúlkur sem hugðust sofa í verslun í Jankoping í Svíþjóð. Þeim mistókst hins vegar því öryggisvörður fann stúlkurnar. Ikea ákvað að kæra ekki stúlkurnar sökum aldurs. Í október síðastliðnum lagði Ikea fram kæru á hendur tveimur fimmtán ára stúlkum frá Svíþjóð sem höfðu komist upp með að eyða nóttunni í verslun einni. Þær lokuðu sig hins vegar inni í fataskáp alla nóttina af ótta við að öryggiskerfið færi í gang. Talsmaður Ikea í Bretlandi segir í samtali við breska ríkisútvarpið að rekstraraðilar kunni að meta það að fólk sýni versluninni áhuga en að öryggi starfsfólks og viðskiptavina sé í algjörum forgangi. Þar af leiðandi sé ekki hægt að leyfa fólki að gista Alls hafa um 1,7 milljón manns horft á myndband Belganna ungu frá því í ágúst. Þeir eyddu alls þremur klukkustundum inni í skáp áður en þeir héldu af stað inn í búðina, hoppuðu á rúmum og höfðu gaman. Myndband Belganna varð svo vinsælt að ungmenni um allan heim hafa tekið upp á að leika þetta eftir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira