Þúsundir þurftu að yfirgefa heimili sín í Þýskalandi vegna sprengju 26. desember 2016 20:01 Sprengjan var rúmlega tvö tonn. Vísir/EPA
Meira en 50 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín í Augsburg í suðurhluta Þýskalands á jóladag eftir að rúmlega tveggja tonna sprengja frá síðari heimsstyrjöld fannst nærri heimilum þeirra. CNN greinir frá. Sprengjan fannst við byggingarframkvæmdir á bílakjallara í síðustu viku og ákváðu stjórnvöld að sprengjan yrði ekki gerð óvirk fyrr en á jóladag þar sem ekki var talið að hætta stafaði af sprengjunni. Því þurftu allir íbúar í 1,5 kílómetra fjarlægð frá sprengjunni að yfirgefa heimili sín á meðan sprengjudeild lögreglunnar gerði sprengjuna óvirka á jóladag. Komið var upp sérstökum miðstöðvum þar sem fólk gat leitað sér athvarfs á meðan sprengjan var gerð óvirk. Aðgerðum við sprengjuna lauk svo farsællega snemma kvölds á jóladag. Borgarstjóri Augsburg, Kurt Gribl þakkaði mönnunum úr sprengjudeild lögreglunnar fyrir hugrekki sitt á Twitter síðu sinni eftir að sprengjan hafði verið gerð óvirk. Sprengjur frá seinna stríði eru enn mikið vandamál víðsvegar í Evrópu nú rúmum 70 árum eftir að stríðinu lauk en síðast í janúar 2014 lést maður á jarðýtu í Þýskalandi eftir að hafa keyrt yfir eina slíka sprengju.#Fliegerbombe entschärft - diese mutigen Männer sind die wahren Helden dieses geschichtsträchtigen Tages. Von Herzen: Danke. pic.twitter.com/9mxrWnKHR9— Kurt Gribl (@politikurt) December 25, 2016
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Sjá meira