Tyrkir: Vopnahlé yfirvofandi í Sýrlandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. desember 2016 19:35 Tyrkir segja að áætlanir séu tilbúnar til að tryggja vopnahlé í Sýrlandi. Vísir/AFP
Tyrkir og Rússar hafa sammælst um aðgerðaráætlun um vopnahlé í Sýrlandi og vonast er til að vopnahléið geti orðið að veruleika á miðnætti í kvöld að staðartíma. Utanríkisráðherra Tyrklands, Mevlut Cavusoglu upplýsti um þetta í dag. Reuters greinir frá.„Það eru tvö skjöl tilbúin sem innihalda áætlanir til þess að ljúka átökunum í Sýrlandi. Eitt skjalið inniheldur lausnina á þeirri stjórnmálakreppu sem ríkir í landinu og hitt skjalið inniheldur áætlun um að ljúka átökunum“ sagði utanríkisráðherrann sem sagðist telja að hægt væri að hrinda áætlunum í framkvæmd hvenær sem er. Óljóst er nákvæmlega hvað felst í áætlunum en vopnahléssamningar munu að sögn Tyrkja ekki ná til yfirlýstra hryðjuverkasamtaka sem barist hafa við stjórnarliða í landinu heldur einungis til hópa sem flokka má undir stjórnarandstöðu.Sýrlandi mögulega skipt upp í óformleg áhrifasvæðiRússar hafa neitað að tjá sig um orð tyrkneska utanríkisráðherrans en heimildir herma að lausnin sem um ræðir gæti falist í því að skipta Sýrlandi upp í óformleg áhrifasvæði milli Rússlands, Tyrklands og Írans en að Assad verði gert kleyft að verða forseti, að minnsta kosti næstu árin. Vonast er til þess að hægt verði að ná leiðtogum uppreisnarhópa og stjórnarinnar saman til að ræða útfærslur á endalokum borgarastyrjaldarinnar og framtíð Sýrlands eftir átökin í Astana, höfuðborg Kasakstan undir forrustu Írana og Rússa. Að sögn rússneskra yfirvalda hefur ekki verið ákveðið hvenær verður boðið til viðræðna í Astana en Bandaríkjunum verður ekki gert kleyft að taka þátt í viðræðunum og ætla Rússar sér að halda viðræðunum utan regluverki Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira