Vörubílstjóri fær tíu ára dóm: Banaði fjórum þar sem hann fiktaði í símanum undir stýri Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2016 15:14 Tracey Houghton lést samstundis ásamt tveimur sonum sínum – Ethan, þrettán ára, og Joshua, ellefu ára – ásamt dóttur sambýlismanns síns, hinni ellefu ára Aimee Goldsmith.
Dómstóll í Bretlandi hefur dæmt vörubílstjóra í tíu ára fangelsi fyrir að hafa ekið aftan á kyrrstæðan bíl og banað móður og þremur börnum á meðan hann var með athyglina á símanum sínum undir stýri.BBC greinir frá því að hin 45 ára Tracey Houghton hafi látist samstundis ásamt tveimur sonum sínum – Ethan, þrettán ára, og Joshua, ellefu ára – ásamt dóttur sambýlismanns síns, hinni ellefu ára Aimee Goldsmith, þegar hinn þrítugi Tomasz Kroker ók aftan á kyrrstæðan bíl á hraðbraut í Berkshire vestur af höfuðborginni London þar sem umferð var stopp þann 10. ágúst síðastliðinn.Að neðan má sjá myndir úr myndbandsupptöku úr vörubíl Kroker fyrir áreksturinn. Rétt er að vara við myndunum.Dómarinn Maura McGowan sagði að athygli Kroker í umferðinni hafi verið svo lítil að hann „hefði allt eins getað verið með lokuð augun“. Væri þetta það hræðilegasta sem hún hefði nokkurn tímann séð.Gerði vörubílinn að drápstóli Myndbandsupptökur úr vörubíl Kroker sýna að hann var með hugann við símann sinn um kílómetra leið þar til hann klessti aftan á bíl fórnarlambanna. Hann var að fletta í tónlistarveitu í símanum þegar áreksturinn varð. Kate Goldsmith, móðir Aimee, segir að Kroker hafi með hegðun sinni gert vörubílinn að drápstóli með því að nota síma sinn á meðan hann ók á um 80 kílómetra hraða. Áreksturinn varð á A34 veginum nærri Newbury. Hvatti hún aðra vegfarendur til að draga lærdóm af málinu og hvatti alla til að láta síma sína vera á meðan þeir sætu undir stýri.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Sjá meira