Gylfi skoraði í tapi gegn Arsenal | Sjáðu mörkin 15. október 2016 16:00
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark fyrir Swansea þegar liðið mætti Arsenal á Emirates-vellinum í Lundúnum í dag. Bob Bradley stjórnaði Swansea í fyrsta sinn eftir að hafa tekið við liðinu af Francesco Guidolin sem sagt var upp störfum á dögunum. Arsenal byrjaði leikinn mun betur og Theo Walcott kom þeim í 2-0 með tveimur mörkum með sjö mínútna millibili um miðjan fyrri hálfleikinn. Á 38.mínútu minnkaði Gylfi Þór Sigurðsson svo muninn þegar hann skoraði glæsilegt mark fyrir utan teig. Gylfi vann boltann af Granit Xhaka leikmanni Arsenal og setti boltann með vinstri fæti framhjá Petr Cech í marki Arsenal. Frábært skot og staðan í hálfleik 2-1. Heimamenn komust svo yfir á nýjan leik á 57.mínútu þegar Mesut Özil skoraði laglegt mark. Spánverjinn Borja Baston minnkaði muninn á nýjan leik fyrir Swansea þegar hann skoraði á 66.mínútu og fjórum mínútum síðar fékk Granit Xhaka beint rautt spjald fyrir brot. Einum færri settu leikmenn Swansea töluverða pressu á Arsenal sem þó fengu sín færi. Walcott fékk meðal annars frábært tækifæri til að fullkomna þrennuna en skaut í þverslá fyrir opnu marki. Lokatölur 3-2 fyrir Arsenal og tapleikur í fyrsta leik Bob Bradley hjá Swansea. Arsenal jafnar Manchester City að stigum á toppi deildarinnar með sigrinum en Swansea er í 18.sæti með 4 stig.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Leik lokið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira