Allt frá því að fyrsta víkingaklappið small á leik Íslands og Portúgals á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar hefur það farið sem eldur í sinu, jafn innanlands sem utan.
Hver þjóðin á fætur annarri hefur lyft upp höndunum og beðið bassatrommusláttsins; hvort sem það eru franskir eða velskir knattspyrnumenn, danskir útskriftarnemar,sænskir eða írskir sjónvarpsþáttastjórnendur eða tónlistarmenn á stórtónleikum í Danmörku, Svíþjóð og Ibiza.
Þá fengu jafnvel eyjaskeggjar á Papúa Nýju-Gíneu sinn skerf af klappinu þegar U20-ára kvennalandslið þjóðarinnar í knattspyrnu tók klappið upp á sína arma. Íslenskir ráðamenn eru ekki heldur óhultir, þeir geta ekki skrifað undir auknar styrkveitingar án þess að þurfa að klappa í kjölfarið.
Sjá einnig: Víkingadrunur Íslendinga bárust frá Skotlandi með viðkomu í Garðabæ
Nú virðast samt hafa orðið vatnaskil í sögu víkingaklappsins, ef marka má samfélagsumræðuna. Það sem áður sameinaði þjóðina á Arnarhóli og á knattspyrnuvöllum í Frakklandi virðist nú vera orðið tákn sundrungar. Steinininn virðist algjörlega hafa tekið úr um helgina þegar rokkararnir í hljómsveitinni í Muse leiddu víkingaklappið í Laugardalshöll.
Mörgum fannst um skemmtilegt uppátæki að ræða, eins og viðbrögðin við þessari færslu bera með sér.
Borgaði 16k fyrir miða og víkingaklappið var tekið, hvert fer ég til að fá endurgreitt? #muse
— Sindri Björnsson (@Sindri95) August 6, 2016
Það var verið að taka víkingaklappið á Muse. Þetta er íslenski botninn.
— Halla Björk (@hallabjork) August 6, 2016
Afhverju þurfa íslendingar alltaf að ofnota allt? #vikingaklapp #muse
— Ragnar Þór Emilsson (@Ragnarthor1) August 6, 2016
Ég ætla ekki að erfa það við #Muse að starta víkingaklappinu einu sinni, en þetta "víkingauppklapp" var svo mikið #plebb
— Óli ?? (@dvergur) August 7, 2016
Andúðin á fyrrum sameiningartákninu er svo mikil að fjölmiðlamaðurinn Kjartan Atli Kjartansson sá sig tilneyddan í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag til að kalla eftir samræðu um víkingaklappið.
„Við þurfum að komast að niðurstöðu. Fólk er farið að rífast um þetta og nú þurfa málsmetandi aðilar að leggja lóð sín á vogaskálarnar. Það er nauðsyn,“ skrifar övæntingarfullur Kjartan.
Hér að neðan má sjá brot af hinum gífurlega skiptu skoðunum á víkingaklappinu og til að reynast að komast til botns í deilunni spyr Vísir einfaldlega: Geyma eða gleyma?
Sýnist af Luton-spjallborðinu að íslenska víkingaklappið sé strax orðið últra-hallærislegt og ósvalt. Við erum orðin Macarena.
— Stefán Pálsson (@Stebbip) August 8, 2016
Ég get ekki meira víkingaklapp
— Þórhildur (@thorhildurhlin) August 7, 2016
Án gríns, fólk sem dissar þetta víkingaklapp er þreyttara en víkingaklappið. Just shut the fuck up.
— Daníel Magnússon (@danielmagg77) August 6, 2016
Hvernig væri nú að slaka á með þetta víkingaklapp fram að næsta landsleik, maður er farinn að heyra þetta liggur við inn á bókasöfnum
— toti86 (@totismari) July 31, 2016
Víkingaklappið má fokka sér á meðan það er ekki bolti nálægt. Plís hættið nú
— Emmsjé (@emmsjegauti) August 7, 2016
Þessi háværi minnihluti verður að fara að sætta sig við það að víkingaklappið verður tekið í dalnum og það verður stemning. #fössari
— Arnar Þór Ólafsson (@arnarthor24) July 29, 2016
hahahahahaahahahaha það er verið að taka víkingaklappið í brekkunni I CAN'T BREATHE
— Daníel Ólafsson (@danielolafsson) July 29, 2016
Mér finnst afskaplega leiðinlegt að Víkingaklappið sé ekki lengur inn. Ég er ný nei sko nýbúin að ná taktinum í því #húh #húúúh #húhhúh
— Lilja Gylfadottir (@liljagylfa) August 8, 2016
Víkingaklappið og kennitöluflakk. Framlag okkar til mannkynsins. Verði ykkur að góðu
— Ásþór Sævar (@asthor_s) August 7, 2016
Hversu gott þarf maður að hafa það til að missa sig í pirringi yfir "Víkingaklappinu"? Þarf maður kannski bara að vera svangur?
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) August 7, 2016
Rétt í þessu var tuð yfir víkingaklappinu að verða þreyttara en klappið sjálft
— Gunnar Már Elíasson (@GunnarEliasson) August 7, 2016
Hættið að væla yfir Víkingaklappinu. Þetta er eins og að væla yfir afmælissöngnum. Þetta er komið til að vera. Deal with it!
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) August 7, 2016