Líkamshluti, töskur og sæti úr flugvél EgyptAir finnast í Miðjarðarhafi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. maí 2016 14:05 Einblínt er á það að finna flugrita vélarinnar svo komast megi að orsökum þess að flugvélin hrapaði. Vísir/EPA
Varnarmálaráðherra Grikklands segir að leitaraðilar hafi fundið líkamshluta, sæti og töskur farþega úr flugi EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhafið í gær. Hlutirnir fundust rétt sunnan við þar sem sambandið við flugvélina rofnaði en fyrr í dag var greint frá því að egypski herinn hefði fundið brak og persónulega muni úr vélinni um 295 kílómetra undan ströndum Alexandríu-borgar í Egyptalandi. Leitaraðilar einblína nú á það að finna flugrita vélarinnar, hina svokölluðu svörtu kassa, svo komast megi að því hvað hafi grandað vélinni. Ekkert hefur fengist staðfest um ástæður þess að vélin brotlenti. Leiddar hafa verið líkur að því að hryðjuverkamenn hafi grandað vélinni frekar en að um tæknilega bilun hafi verið að ræða. Að finna flugritana gæti þó reynst þrautinni þyngri en miðað við þau gögn sem liggja fyrir telja rannsakendur að vélin hafa hrapað í sjóin nærri þeim stað sem egypski herinn fann brakið fyrr í dag. Mikið dýpi er á því svæði Miðjarðarhafsins líkt og meðfylgjandi mynd gefur til kynna.#EgyptAir #MS804 wreckage may be on one of the deepest parts of the Mediterranean. pic.twitter.com/jDnHx712Es— MarineTraffic (@MarineTraffic) May 20, 2016 Ólíklegt að sprengja hafi grandað vélinni Greint hefur verið frá því að að flugvélinni hafi verið beygt skyndilega áður en hún hvarf af ratsjám og brotlenti. Fyrst hafi hún beygt í 90 gráður til hægri og svo í heilan hring í hina áttina.Breskur sérfæðingur í flugmálum sagði í samtali við The Guardian að hinar skyndilegu stefnubreytingar vélarinnar bentu ekki til þess að sprengibúnaður hafi grandað vélinni, líklega væru þær af mannavöldum. Airbus flugvél EgyptAir með flugnúmerið MS804 hvarf af ratsjám eftir um fjögurra tíma flug frá París í Frakklandi til Kaíró í Egyptalandi snemma á fimmtudag. Alls voru sextíu og sex innanborðs, þar af þrjátíu frá Egyptalandi og fimmtán franskir ríkisborgarar, þegar vélin brotlenti í Miðjarðarhafi.
Tengdar fréttir Egypsk flugvél hvarf yfir Miðjarðarhafi Sextíu og sex eru um borð í vélinni sem sögð er hafa hrapað í hafið. 19. maí 2016 07:12 Yfirvöld staðfesta að brak úr egypsku flugvélinni sé fundið googlHernaðaryfirvöld í Egyptalandi staðfesta að brak úr flugvél EgyptAir hafi fundist undan ströndum Egyptalands. 20. maí 2016 09:56 Flugvélin beygði skyndilega áður en hún hvarf Varnarmálaráðherra Grikklands segir að fyrst hafi hún beygt í 90 gráður til hægri og svo í heilan hring í hina áttina. 19. maí 2016 11:28 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira
Egypsk flugvél hvarf yfir Miðjarðarhafi Sextíu og sex eru um borð í vélinni sem sögð er hafa hrapað í hafið. 19. maí 2016 07:12
Yfirvöld staðfesta að brak úr egypsku flugvélinni sé fundið googlHernaðaryfirvöld í Egyptalandi staðfesta að brak úr flugvél EgyptAir hafi fundist undan ströndum Egyptalands. 20. maí 2016 09:56
Flugvélin beygði skyndilega áður en hún hvarf Varnarmálaráðherra Grikklands segir að fyrst hafi hún beygt í 90 gráður til hægri og svo í heilan hring í hina áttina. 19. maí 2016 11:28