Skrifað undir samning án ákvæðis um SALEK Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. febrúar 2016 07:00 Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræðir við Pál Halldórsson, formann samninganefndar BHM, í húsnæði ríkissáttasemjara í samningalotu á síðasta ári. Bæði hjúkrunarfræðingar og félög BHM eiga enn ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga. Fréttablaðið/GVA „
Samband íslenskra sveitarfélaga féll frá því að SALEK-samkomulagið væri hluti af þessum kjarasamningi þannig að á grundvelli þess gátum við skrifað undir,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness (VLFA). Skrifað var undir nýjan kjarasamning félagsins og sveitarfélaganna í húsnæði ríkissáttasemjara í Reykjavík í dagslok á miðvikudag. Kynning á samningnum hefst í þessari viku. Nýr samningur gildir til 31. mars 2019 og er í öllum meginatriðum eins og aðrir samningar sem sveitarfélögin hafa gert eftir að samkomulag náðist á grunni SALEK í október, utan að Akraneskaupstaður tryggir að hann gildi frá 1. maí 2015, auk sérákvæða um fjögurra prósenta hækkun til handa ófaglærðum starfsmönnum á leikskólum.Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA„Þetta er bara eitt skref af mörgum í að vinna í því að samningsrétturinn verði ekki skertur hjá íslensku launafólki,“ segir Vilhjálmur. Í veginum var ekki annað en ákvæðið um SALEK sem sveitarfélögin höfðu viljað hafa tengt nýjum samningi. „Það var enginn ágreiningur um það. Okkar aðalmál var að SALEK-samkomulagið yrði ekki fylgiskjal með kjarasamningnum sem hefði gert það að ígildi kjarasamnings,“ segir Vilhjálmur. Í kjölfarið var bókað hjá ríkissáttasemjara að hvað þetta mál varðaði væri frekari málarekstur fyrir félagsdómi eða dómstólum úr sögunni. „Við erum fyrsta stéttarfélagið sem undirritar slíkan samning við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur og kveðst nokkuð ánægður með gerðan samning. Vilhjálmur segir miklu máli hafa skipt sá stuðningur sem félagsmenn VLFA hafi sýnt baráttunni gegn SALEK-ákvæðinu. „Menn sýndu því skilning að þarna var ekki karpað um krónur og aura heldur framtíðarsamningsfrelsi okkar." LokaspretturinnVið taka aðrar viðræður hjá samninganefnd sveitarfélaganna, en meðal þeirra sem enn er ósamið við eru tónlistarkennarar, hjúkrunarfræðingar, verkfræðingar og fleiri stéttir. Flestir eru bjartsýnir á að samningar náist þótt einhverjum þyki nokkur dráttur orinn á. Þannig eru sagðar rólegar viðræður í gangi hjá félagi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. „Ég reikna með að við klárum snemma í febrúar,“ segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri félagsins. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, telur viðræður við sveitarfélögin hins vegar hafa gengið hægt þó hist hafi verið nokkrum sinnum. Á næsta fundi, sem boðað hafi verið til eftir helgina segir hún samninganefnd sveitarfélaganna hafa boðað framlagningu tillögu sem tekin verði til skoðunar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira