Gylfi: Vonandi held ég áfram að skora Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. febrúar 2016 12:30 Gylfi fagnar marki sínu gegn Swansea. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið sjóðheitur upp við mark andstæðinganna að undanförnu og skorað fimm mörk í síðustu sex deildarleikjum Swansea City. Gylfi skoraði mark Swansea í 1-1 jafntefli gegn Crystal Palace á laugardaginn en þetta var sjöunda deildarmark hans á tímabilinu.Sjá einnig: Gylfi jafnaði fjórtán ára afrek Eiðs Smára Gylfi er þegar búinn að jafna markafjölda sinn frá því á síðasta tímabili og þá hefur enginn miðjumaður í úrvalsdeildinni skorað jafn mörg mörk og hann á árinu 2016 (5). „Það tók mig tíma að komast í gang í markaskorun en ég er á góðri siglingu núna,“ sagði Gylfi í samtali við heimasíðu Swansea. Gylfi skoraði markið gegn Palace með góðu skoti beint úr aukaspyrnu. „Ég hafði góða tilfinningu fyrir aukaspyrnunni og hitti boltann vel. Þetta kom okkur á bragðið og við vorum nálægt því að skora annað mark en það gekk ekki,“ sagði Gylfi sem er ánægður með frammistöðu Swansea í undanförnum leikjum. „Vonandi held ég áfram að skora en mikilvægast er að liðið vinni leiki. Það voru vonbrigði að gera jafntefli við Palace, sérstaklega í ljósi þess að við náðum forystunni, en við erum að spila mun betur en við gerðum og það er jákvætt,“ bætti íslenski landsliðsmaðurinn við.Sjá einnig: Gylfi kemur nýgiftum stuðningsmanni Swansea á óvar | Myndband Swansea hefur fengið átta stig úr síðustu fjórum leikjum sínum og er nú fjórum stigum frá fallsæti þegar 13 umferðum er ólokið í úrvalsdeildinni.Gylfi Sigurdsson has now scored 5 Premier League goals in 2016, more than any other midfielder. pic.twitter.com/Nuvy12jEkw— Squawka Football (@Squawka) February 6, 2016
Enski boltinn Mest lesið „Hann er sonur minn“ Fótbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Enski boltinn Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti Fleiri fréttir Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Sjá meira