Vísa því á bug að flugvél EgyptAir hafi beygt af leið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. maí 2016 22:36 Egypsk yfirvöld neita því að flugvél Egypt Air sem hrapaði í Miðjarðarhafið hafi beygt skyndilega af leið áður en hún brotlenti. Vísir/Getty
Egypsk yfirvöld vísa því á bug að flugvél EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhafið í síðustu viku hafi verið beygt af leið áður en hún brotlenti í sjónum. Þessu hafði verið haldið fram af varnarmálaráðherra Grikklands sem greindi frá því að flugvélin hafi verið beygt skyndilega áður en hún hvarf af ratsjám og brotlenti. Fyrst hafi hún beygt í 90 gráður til hægri og svo í heilan hring í hina áttina.Smella má á myndina til að sjá stærri útgáfu.Vísir/GraphicnewsHáttsettur yfirmaður innan flugmálayfirvalda Egyptalands segir að þetta sé ekki rétt og að engar óeðlilegar stefnubreytingar á borð við þær sem lýst er hér að ofan hafi átt sér stað áður en að flugvélin hrapaði. Ekkert hefur fengist staðfest um ástæður þess að vélin brotlenti. Leiddar hafa verið líkur að því að hryðjuverkamenn hafi grandað vélinni frekar en að um tæknilega bilun sé að ræða.Reykur greindist einnig inn á klósetti flugvélar EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhafið og með rafmagnslögnum hennar, skömmu áður en hún brotlenti. Ljóst er að mörgum spurningum um orsakir slyssins er enn ósvarað og segir forseti Egyptalands að allar mögulegar tilgátur verði rannsakaðar. Ekki verður unnt að svara þessum spurningum fyrr en að flugritar vélarinnar finnast en allt kapp er lagt á að finna þá. Alls voru sextíu og sex innanborðs, þar af þrjátíu frá Egyptalandi og fimmtán franskir ríkisborgarar, þegar vélin brotlenti í Miðjarðarhafi.
Tengdar fréttir Myndir birtar af braki úr flugvélinni Í ljós hefur komið að flugvél EgyptAir var beygt mjög snögglega áður en hún brotlenti í Miðjarðarhafið og að reykur hafi greinst um borð. 21. maí 2016 10:45 Skynjarar greindu reyk áður en flugvélin brotlenti Reykur greindist inn á klósetti flugvélar EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhafið og með rafmagnslögnum hennar. 20. maí 2016 22:44 Leita að flugritum vélarinnar Leitarflokkar hafa fundið ferðatöskur, flugvélasæti og líkamsleifar einhverra farþega flugvélar EgyptAir sem hvarf í Miðjarðarhafið í gærnótt. Ekkert hefur fengist staðfest um ástæður þess að flugvélin fór í hafið en talið er nær öruggt að það hafi verið af mannavöldum. 20. maí 2016 19:30 Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira
Myndir birtar af braki úr flugvélinni Í ljós hefur komið að flugvél EgyptAir var beygt mjög snögglega áður en hún brotlenti í Miðjarðarhafið og að reykur hafi greinst um borð. 21. maí 2016 10:45
Skynjarar greindu reyk áður en flugvélin brotlenti Reykur greindist inn á klósetti flugvélar EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhafið og með rafmagnslögnum hennar. 20. maí 2016 22:44
Leita að flugritum vélarinnar Leitarflokkar hafa fundið ferðatöskur, flugvélasæti og líkamsleifar einhverra farþega flugvélar EgyptAir sem hvarf í Miðjarðarhafið í gærnótt. Ekkert hefur fengist staðfest um ástæður þess að flugvélin fór í hafið en talið er nær öruggt að það hafi verið af mannavöldum. 20. maí 2016 19:30