Þúsundir mættu í 15 ára afmælisveisluna vegna mistaka pabbans sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 27. desember 2016 08:58 Alls höfðu 1,2 milljónir boðað komu sína í veisluna. vísir/epa
Mörg þúsund manns mættu í afmælisveislu hinnar fimmtán ára Rubi Ibarra Garcia á dögunum vegna mistaka föður hennar sem birti myndskeið á netinu þar sem hann bauð í veislu dóttur sinnar í heimabæ þeirra í Mexíkó. Boðskortið, sem var ætlað vinum og ættingjum, var opið öllum og fyrr en varði höfðu mörg þúsund manns deilt myndbandinu á samfélagsmiðlum. Faðir stúlkunnar, Crescencio Ibarra, sagði í myndskeiðinu að allir væru velkomnir í veisluna, en átti þá í raun við að allir þeirra ættingjar, vinir og nágrannar væru velkomnir. Alls höfðu 800 þúsund manns deilt boðskortinu á netinu fyrir veisluna og yfir 1,2 milljónir boðað komu sína í afmælið.Boðskortið vakti svo mikla athygli að mexíkóska flugfélagið Interjet bauð þeim sem hugðust sækja veisluna þrjátíu prósent afslátt af flugferðinni. Sjálfræðisaldur í Mexíkó er fimmtán ár og var því öllu til tjaldað í veislunni, en nokkrar hljómsveitir stigu á svið og þá voru haldnar kappreiðar, svo fátt eitt sé nefnt. Her ljósmyndara og fjölmiðlamanna var á svæðinu þegar fjölskyldan mætti til afmælisveislunnar, og svo margt var um manninn að lögregla og Rauði krossinn voru fengin til að fylgjast með. Hér fyrir neðan má sjá myndband úr veislunni.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Sjá meira