Góðmennska George Michael átti sér lítil takmörk Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. desember 2016 12:00 Hjúkrunarfræðingar voru söngvaranum sérstaklega hugleiknir. Vísir/Getty
George Michael, sem lést á jóladag, hefur ekki aðeins verið minnst sem tónlistarmanns sem færði okkur ódauðlegar perlur á borð við Last Christmas, Careless Whisper og Faith heldur einnig fyrir fádæma góðmennsku og gjafmildi. Allt frá því að fregnir bárust af andláti hans hefur fjöldi einstaklinga og félagasamtaka stigið fram og greint frá góðverkum söngvarans - sem hann gerði oftar en ekki nafnlaust. Breski sjónvarpsmaðurinn Richard Osman greindi frá því að George Michael hafi til að mynda gefið konu 15 þúsund pund, rúmar 2 milljónir króna á gengi dagsins í dag, svo hún gæti farið tæknifrjóvgunina sem hana dreymdi um. Konan hafði verið keppandi í þættinum Deal or No Deal og setti söngvarinn sig í samband við stjórnendur þáttarins og bað þá um að koma peningnum til konunnar. Hún komst aldrei að því hver hafði rétt henni hjálparhönd - þar til nú.A woman on 'Deal Or No Deal' told us she needed £15k for IVF treatment. George Michael secretly phoned the next day and gave her the £15k.— Richard Osman (@richardosman) December 26, 2016 Það er þó langt í frá eina góðverkið sem poppgoðið gerði í lifanda lífi. Hann á að sama skapi að hafa gefið grátandi konu á kaffihúsi 25 þúsund pund, liðlega 3 og hálfa milljón króna, svo hún gæti gert upp við lánadrottna sína. Þá átti söngvarinn til að verja frístundum sínum við sjálfboðaliðastörf í athvarfi fyrir heimilislausa. „Ég sagði aldrei neinum, hann fór fram á það,“ segir Emilyne Mondo sem starfaði með honum í athvarfinu.Gaf hjúkrunarfræðingum þúsundir tónleikamiða Hjúkrunarfræðingar voru George Michael hugleiknir, ekki síst eftir að hafa þurft að fylgja móður sinni í gegnum erfið veikindi. Tónlistarmaðurinn gaf breskum hjúkrunarfræðingum hundruð miða á tónleika hans í gegnum árin ásamt því að halda sérstaka tónleika þeim til heiðurs árið 2006 þangað sem þeim var boðið, endurgjaldslaust. 1000 austurískir hjúkrunafræðingar fengu að sama skapi boð á tónleika hans. George Michael leit á það sem þakklætisvott eftir að hann greindist með lungnabólgu árið 2012 og þeir austurrísku hjúkruðu honum aftur til heilsu.Sjá einnig: George Michael var einsamall þegar hann lést. Það voru þó ekki einungis starfandi hjúkrunarfræðingar sem fengu að njóta góðmennsku hans. Afgreiðslukona á veitingastað fékk 5000 pund í þjórfé frá George Michael eftir að hann komst að því hún hafði sótt um starfið til að fjármagna hjúkrunarfræðinám sitt og greiða upp skuldir. Allan ágóða af lögunum Last Christmans/Everything She Wants, Don't Let the Sun Go Down On Me og Jesus To a Child lét hann renna til margvíslegra hjálparsamtaka, jafnt í Bretlandi sem og í Eþíópíu sem hafði orðið illa úti í þurrkum.Don't Let The Sun Go Down On Me má heyra hér að neðanSamtökin Childline, sem hjálpa börnum að takast á við hvers kyns vandamál, nutu líklega gjafmildi hans meira en nokkur annar. Stofnandi og forseti samtakanna, Esther Rantzen, sagði í samtali við fjölmiðla ytra að George Michael hafi verið „ótrúlega gjafmildur mannvinur. Hann var ákveðinn í að góðmennska hans þyrfti ekki að spyrjast út svo enginn utan samtakanna raunverulega vissi hversu mikið hann studdi við verst settu börn samfélagsins,“ sagði Rantzen. Sjá einnig: Heimsbyggðin syrgir George Michael: „Allir núlifandi og starfandi karlpoppsöngvarar skulda þér eitthvað poggu“ „Hann hefur gefið okkur milljónir [punda] í gegnum árin og höfðum við hugsað okkur að halda stóra tónleika á næsta ári, þegar við fögnum 30 ára afmæli samtakanna, honum til heiðurs. Ekki einungis til heiðurs tónlistarsköpun hans heldur einnig sem þakklætisvott frá þeim þúsundum barna sem hann studdi í gegnum Childline.“
Tengdar fréttir George Michael látinn Breski söngvarinn lést í dag, jóladag. 25. desember 2016 23:13 George Michael einsamall þegar hann lést Hjartastopp poppgoðsagnarinnar er rakið til heróínfíknar. 26. desember 2016 22:40 Sjáðu flutning George Michael á Somebody to Love sem heillaði Queen, Bowie og heimsbyggðina Hann sagði að þetta væri erfiðasta lag sem hann hefði þurft að flytja en George Michael gerði það þó svo sannarlega með glæsibrag. 27. desember 2016 10:08 Heimsbyggðin syrgir George Michael: „Allir núlifandi og starfandi karlpoppsöngvarar skulda þér eitthvað poggu“ George Michael bættist í gær í hóp þekktra einstaklinga sem látist hafa á árinu sem senn líður undir lok. Hann var einn dáðasti tónlistarmaður heims allt til dauðadags og átti afar stóran aðdáendahóp sem nú syrgir poppgoðið sitt. 26. desember 2016 10:00 Hjartabilun dánarorsök George Michael Hjartabilun var dánarorsök breska söngvarans George Michael en hann lést í gær, jóladag, langt fyrir aldur fram, aðeins 53 ára að aldri. 26. desember 2016 09:18 George Michael var sá fyrsti sem fór með James Corden á rúntinn – Myndband Eftir að breski söngvarinn George Michael lést í gær hafa fjölmiðlar víða um heim rifjað upp lífshlaup hans og feril. 26. desember 2016 16:03 Mest lesið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Lífið Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tíska og hönnun Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Lífið Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Lífið Yfirlýst lesbía Lífið Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Lífið Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Tónlist Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið Menning Krakkaskaup fyrir fullorðna Gagnrýni Fleiri fréttir Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Fjörugt Food and fun framundan „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Sjá meira
George Michael einsamall þegar hann lést Hjartastopp poppgoðsagnarinnar er rakið til heróínfíknar. 26. desember 2016 22:40
Sjáðu flutning George Michael á Somebody to Love sem heillaði Queen, Bowie og heimsbyggðina Hann sagði að þetta væri erfiðasta lag sem hann hefði þurft að flytja en George Michael gerði það þó svo sannarlega með glæsibrag. 27. desember 2016 10:08
Heimsbyggðin syrgir George Michael: „Allir núlifandi og starfandi karlpoppsöngvarar skulda þér eitthvað poggu“ George Michael bættist í gær í hóp þekktra einstaklinga sem látist hafa á árinu sem senn líður undir lok. Hann var einn dáðasti tónlistarmaður heims allt til dauðadags og átti afar stóran aðdáendahóp sem nú syrgir poppgoðið sitt. 26. desember 2016 10:00
Hjartabilun dánarorsök George Michael Hjartabilun var dánarorsök breska söngvarans George Michael en hann lést í gær, jóladag, langt fyrir aldur fram, aðeins 53 ára að aldri. 26. desember 2016 09:18
George Michael var sá fyrsti sem fór með James Corden á rúntinn – Myndband Eftir að breski söngvarinn George Michael lést í gær hafa fjölmiðlar víða um heim rifjað upp lífshlaup hans og feril. 26. desember 2016 16:03