Segja Snowden hafa valdið gífurlegum skaða Samúel Karl Ólason skrifar 16. september 2016 11:30 Edward Snowden. Vísir/EPA
Bandarísk þingnefnd segir uppljóstrarann Edward Snowden hafa valdið gífurlegum skaða á þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Í nýlegri skýrslu sem nefndin vann segja þeir Snowden hafa logið til um bakgrunn sinn og hafa rifist mikið við samstarfsmenn sína. Hann hafi í raun ekki verið göfugur uppljóstrari og þess í stað eingöngu verið fúll út í starfsveitendur sína. „Edward Snowden er engin hetja. Hann er svikari sem sveik samstarfsmenn sína og þjóð vísvitandi,“ sagði Devin Nunes, formaður nefndarinnar. Hávær köll heyrast nú í Bandaríkjunum þar sem Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er beðinn um að náða Snowden. Mannréttindasamtök eins og Amnesty International og Human Rights Watch hafa kallað eftir náðun Snowden. Blaðamaður Guardian ræddi nýverið við Snowden um af hverju Obama ætti að náða hann. Uppljóstrarinn flúði til Rússlands eftir að þúsundir leyniskjala sem hann stal frá NSA voru birt opinberlega. Þeir ræddu einnig um kvikmyndina Snowden eftir Oliver Stone, sem frumsýnd er í dag.Í skýrslunni, sem unnin var af þingmönnum bæði Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins, segir að stærstur hluti þeirra gagna sem Snowden hafi stolið frá NSA hafi ekki snúið að brotum yfirvalda Bandaríkjanna og Bretlands gegn friðhelgi einkalífs borgara. Þess í stað hafi þau snúið að upplýsingaröflunar- og varnarmálaverkefnum sem andstæðingar Bandaríkjanna hafi sýnt mikinn áhuga. Þingnefndin hefur ekki birt skýrsluna í heild sinni, samkvæmt Reuters, heldur hafa einungis niðurstöður nefndarinnar verið birtar. Í skýrslunni er ekki gengið svo langt að kalla Snowden lygalaup, en þess í stað segir að hann hafi verið og sé enn mikið fyrir að ýkja og að búa til sögur. Því er haldið fram að hann hafi logið til um af hverju hann komst ekki í gegnum grunnþjálfun í her Bandaríkjanna, að hann hafi logið til um menntun sína og starfstitil hjá NSA. Þá segir í skýrslunni að hann hafi stolið einni og hálfri milljón leyniskjala. Reuters segir hins vegar að aðilar sem hafi farið yfir gögnin sem Snowden lét fjölmiðla fá að um tvö til þrjú hundruð þúsund skjöl hafi verið að ræða. Þá er því haldið fram að hann hafi stolið gögnunum tveimur vikum eftir að hann hafi verið ávíttur í starfi fyrir að rífast við yfirmenn sína í júní 2012.Ekki að íhuga náðun Snowden Sjálfur segir Snowden að skýrslan sé ekki upp á marga fiska og eftir tveggja ára rannsókn þingmanna, eigi bandaríska þjóðin betra skilið. Hann segir að þingnefndin hafi í raun varið tveimur árum í að skrifa skýrslu til að reyna að fá fólk til að horfa ekki á kvikmynd Oliver Stone. Josh Earnest, talsmaður Hvíta hússins, segir að Obama íhugi ekki að náða Snowden. „Framferði hans ógnaði lífum Bandaríkjamanna og þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Þess vegna er það stefna ríkisstjórnar Obama að Snowden ætti að snúa aftur til Bandaríkjanna og mæta þeim alvarlegu ákærum sem lagðar hafa verið fram.“After "two years of investigation," the government charges... I faked a sick day and have a GED? Did they not watch the Guardian interview?— Edward Snowden (@Snowden) September 15, 2016 The claim I "doctored performance evaluations?" This one is amazing: I reported an XSS (hacking) vulnerability in CIA annual review system.— Edward Snowden (@Snowden) September 15, 2016 I could go on. Bottom line: after "two years of investigation," the American people deserve better. This report diminishes the committee.— Edward Snowden (@Snowden) September 15, 2016
Tengdar fréttir Google Translate sneri á Edward Snowden Fullyrti að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson væri búinn að segja af sér. 3. apríl 2016 21:09 Edward Snowden: Stærstu mótmæli sögunnar? Fyrrum C.I.A. starfsmaðurinn heldur áfram að tísta um atburðarásina á Íslandi. 4. apríl 2016 22:25 Snowden hvetur Breta til að fara að fordæmi Íslendinga Forsætisráðherra Bretlands átti hlut í aflandsfélagi föður síns. 7. apríl 2016 23:15 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira
Google Translate sneri á Edward Snowden Fullyrti að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson væri búinn að segja af sér. 3. apríl 2016 21:09
Edward Snowden: Stærstu mótmæli sögunnar? Fyrrum C.I.A. starfsmaðurinn heldur áfram að tísta um atburðarásina á Íslandi. 4. apríl 2016 22:25
Snowden hvetur Breta til að fara að fordæmi Íslendinga Forsætisráðherra Bretlands átti hlut í aflandsfélagi föður síns. 7. apríl 2016 23:15