Erdogan Tyrklandsforseti hamast í kosningabaráttu Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. júní 2015 07:00 Kosningaspjöld sjást víða í Tyrklandi þessa dagana. Þarna má sjá andlit þeirra Ahmets Davutoglus forsætisráðherra og Receps Tayyip Erdogan forseta.fréttablaðið/EPA
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur farið víða í kosningabaráttunni undanfarið til að tryggja flokki sínum nægan styrk í þingkosningunum á morgun til að geta náð í gegn stjórnarskrárbreytingum, sem eiga að tryggja honum sjálfum aukin völd. Sjálfur er hann þó ekki í framboði og má reyndar ekki sem forseti blanda sér í þingkosningar. Slík tæknileg atriði lætur hann samt ekki flækjast fyrir sér. Flokki hans, Réttlætis- og þróunarflokknum, er spáð nokkuð öruggum þingmeirihluta þrátt fyrir að hafa misst fylgi undanfarið. Barátta Erdogans snýst hins vegar um að flokkurinn fái nægilega mörg þingsæti til að geta breytt stjórnarskrá landsins án aðkomu annarra þingmanna. Hann vill nefnilega breyta stjórnskipun Tyrklands þannig að þar verði forsetaræði, með svipuðum hætti og í Bandaríkjunum og Frakklandi. Þar með yrðu forsetanum tryggð meiri völd en í núverandi stjórnskipan. Erdogan var forsætisráðherra Tyrklands í þrettán ár, frá 2003 til 2014, en ákvað að bjóða sig fram til forseta á síðasta ári eftir að hafa unnið jafnt og þétt að því að styrkja völd bæði forseta og stjórnarmeirihlutans. Lokahnykkurinn í því ferli á að verða gildistaka nýrrar stjórnarskrár, sem margir óttast að geri Erdogan nánast að einræðisherra. Kosningarnar gætu einnig markað tímamót fyrir HDP-flokkinn, sem er stjórnmálaflokkur Kúrda. Flokkurinn virðist eiga möguleika á því að komast yfir tíu prósenta þröskuldinn og þannig ná manni inn á þing í fyrsta sinn í sögunni. Reyndar hefur flokkurinn verið með fulltrúa á þingi, en það tókst með því að bjóða fram óháða frambjóðendur. Flokkurinn tekur áhættu með því að bjóða fram flokkslista að þessu sinni, því samkvæmt skoðanakönnunum munar litlu á því hvort niðurstaðan verður ofan eða neðan við tíu prósenta þröskuldinn. Til þess að ná manni inn á þing þarf flokkur að fá 10 prósent atkvæða, sem er óvenju hár þröskuldur. Óvissan er samt töluverð, bæði vegna hættu á kosningasvindli og vegna þess að engar skoðanakannanir hefur mátt gera síðustu tíu dagana fyrir kosningar.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Innlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Fleiri fréttir Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Sjá meira