Litabók sem ætluð er fyrir fullorðna Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 19. júní 2015 09:30 Vísir/Gva
Í dag kemur út litabókin Leynigarður sem ætluð er fullorðnum. Myndskreytingarnar eru af trjám, blómum, skordýrum og fiskum svo fátt eitt sé nefnt og eru talsvert fíngerðar og því þýðir lítið annað en að vanda til verka þegar litað er. "Maður þarf að vanda sig mjög mikið og nota fíngerða blýanta eða tússpenna. Myndirnar eru þannig að þú getur líka ákveðið að lita mjög lítið og það getur verið mjög fallegt. Það er ekkert sjálfgefið að þú þurfir að lita alla myndina,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, en hún er ein af þeim sem á bókina. Leynigarður var upphaflega gefin út í Bretlandi og heitir á ensku Secret Garden og er höfundur hennar Johanna Basford. Íslenska útgáfan er þýdd af ljóðskáldinu Ingunni Snædal og er bókin gefin út af Bjarti. 1.500.000 eintök hafa verið seld af bókinni á heimsvísu og hún þýdd á 14 mismunandi tungumál og talsvert verið fjallað um hana í erlendum miðlum þar sem hún er sögð prýðisgóð til þess að slaka á og er Halla á sama máli. Sökum anna hefur hún þó ekki haft mikinn tíma til þess að lita í bókina en sér fyrir sér í hillingum tíma þegar minna er að gera. "Ég á hús upp í sveit og ég sé mig fyrir mér að sitja á sólríku sumarsíðdegi með bókina þegar ég hef ekkert annað að gera,“ segir hún hlæjandi að lokum.
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Lífið Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Lífið Sopranos-stjarna látin Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Lífið „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Lífið Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Lífið Fleiri fréttir „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt Sjá meira