Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu myndirnar af Benedict Cumberbatch sem Dr. Strange

Birgir Olgeirsson skrifar
Aðdáendur ofurhetja fengu sannarlega skemmtilegan glaðning frá tímaritinu Entertainment Weekly í dag sem birti sex myndir af leikaranum Benedict Cumberbatch sem Doctor Strange.

Í myndasagnaheimi heitir Doctor Strange fullu nafni Dr. Stephen Vincent Strange. Í upphafi var hann sjálfhverfur taugaskurðlæknir sem breytist í seiðkarl eftir að hafa lent í hrikalegu bílslysi. Þessi karakter verður að sjálfsögðu hluti af Avengers-heimi Marvel og mun þjóna því hlutverki að vera tengingin yfir í yfirskilvitlega heiminn.

Cumberbatch fór í fyrsta skiptið í gervi Dr. Strange fyrir myndatökuna hjá Entertainment Weekly og sagðist í samtali við tímaritið ekki enn hafa lært alveg inn á karakter Dr. Strange. Til að mynda hafði hann kynnt sér allar handahreyfingar Dr. Strange, sem er fremur mikilvægar í sögunum þar sem hann notar þær til að leggja álög og kalla fram töfra.

Tilda SwintonRachel McAdamsChiwetel Ejiofor og Mads Mikkelsen fara einnig með hlutverk í myndinni. Tilda Swinton leikur læriföður Dr. StrangeThe Ancient One, en Ejiofor mun leika Baron Mordo, sem einnig lærði undir The Ancient One áður en hann varð erkióvinur Dr. Strange.

Leikstjóri myndarinnar er Scott Derrickson en myndin verður frumsýnd í nóvember næstkomandi. Myndirnar má sjá með því að smella á þennan hlekk hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×