Skrtel kom Newcastle á bragðið í óvæntum sigri | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. desember 2015 17:45
Klaufalegt sjálfsmark Martin Skrtel kom Newcastle á bragðið í óvæntum 2-0 sigri Newcastle á Liverpool í dag. Eftir flugeldasýninguna sem leikmenn Liverpool buðu uppá á miðvikudaginn áttu margir von á að þetta yrði nokkuð auðveldur sigur fyrir Liverpool en annað kom á daginn. Staðan var markalaus í hálfleik en Christian Benteke fékk besta færi fyrri hálfleiks er boltinn féll fyrir hann í markteignum en framherjinn stóri og stæðilegi setti boltann yfir. Á 69. mínútu kom síðan eina mark leiksins en þá varð Skrtel fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Fór þá boltinn af Skrtel eftir fyrirgjöf Georginio Wijnaldum og yfir Simon Mignolet í marki Liverpool. Var þetta sjöunda sjálfsmark Skrtel hjá Liverpool og jafnaði hann með því Jamie Carragher yfir flest sjálfsmörk hjá félaginu en Richard Dunne hefur skorað flest sjálfsmörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með tíu. Alberto Moreno virtist hafa jafnað metin tíu mínútum fyrir lok leiksins með glæsilegri afgreiðslu en hann var er virtist vera ranglega dæmdur rangstæður. Leikmenn Liverpool reyndu að færa sig framar á völlinn á lokamínútum leiksins en án árangurs og bætti Wijnaldum við öðru marki Newcastle í uppbótartíma þegar hann lyfti boltanum yfir Mignolet eftir góða sendingu inn í vítateiginn. Með sigrinum skaust Newcastle upp fyrir nágrannana í Sunderland en eru enn í fallsæti með 13 sit að 15 umferðum loknum. Liverpool aftur á móti missti af gullnu tækifæri til þess að saxa á toppliðin í baráttuni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári.
Enski boltinn Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Fótbolti „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Valur - KA | Barist í undanúrslitum Handbolti Fleiri fréttir Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Sjá meira