Íslenski boltinn

Baldur Sigurðsson í Stjörnuna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Baldur Sigurðsson leikur í bláum búningi á næstu leiktíð, en ekki KR-búningnum.
Baldur Sigurðsson leikur í bláum búningi á næstu leiktíð, en ekki KR-búningnum. vísir/vilhelm
Baldur Sigurðsson er genginn í raðir Stjörnunnar, en þetta staðfesti hann í fótboltaþættinum Fótbolta.net á X-inu nú fyrir skömmu.

Baldur hefur leikið í Danmörku síðastliðið ár með SönderjyskE í Danmörku, en þar áður spilaði hann með KR í fjölda ára. Þar vann hann nokkra titla, en KR sýndi lítin sem engan áhuga á að fá Baldur í sínar raðir núna sagði Baldur í samtali við Tómas Þór Þórðarson á X-inu.

FH og Stjarnan börðust um Baldur sem valdi Stjörnuna á endanum, en Baldur hefur verið þó nokkuð meiddur á tíma sínum úti í Danmörku.

Sjá einnig: FH og Stjarnan berjast um Baldur

Hann hefur leikið 288 leiki í íslensum fótbólta, flesta fyrir KR, en einnig fyrir Keflavík og heimalið sitt, Völsung.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Stjörnuna sem hafði misst þrjá sterka leikmenn; Gunnar Nielsen til FH, Michael Præst til KR og Pablo Punyed til ÍBV.

Ítarlegri viðtal birtist við Baldur á Vísi innan skamms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×