Sjússinn er misstór Linda Blöndal skrifar 11. júlí 2014 21:36
Mikið vantar upp á að farið sé að lögum og reglum um áfengismál á veitingahúsum hér á landi og að skýrt sé fyrir kaupendum hvaða áfengismagn þeir fá afgreitt. Á yfir 90 veitingastöðum sem kannaðir voru nýlega var hvergi farið að öllum settum reglum. Neytendastofa vill einfalda kerfið.Vantar merkingarNeytendastofa gerði könnun í fyrra en staðan er þó misjöfn á milli veitingastaða. Sum staðar eru vínglösin hvorki merkt eftir magni né vínið framreitt í stöðluðum stærðum, eins og karöflum eða lokuðum smáflöskum. Það sama á við um bjórinn. Algengt hefur verið að framleiðendur merki bjórglösin með mælistriki en úr því hefur dregið að undanförnu. Þá voru sjússamælar fyrir sterkt áfengi oft ekki löggiltir, annað hvort með sérstakri evrópumerkingu eða sem gerð er hér innanlands. Veitingamenn segja erfitt að nálgast mæla og því fylgi kostnaður og vesen.Óljóst hvað einfaldur kostar„Okkur finnst staðan slæm. Vandinn er sá að flest allir veitingastaðir eru ekki að nota merkt glös eða mál þegar þeir selja laust vín eða bjór og einnig líka sterkt áfengi. Það hefur verið í reglugerð í langan tíma og það þarf að virða rétt neytenda til að vita hvað rétt mál er þegar þessi drykkir eru keyptir í lausu“, sagði Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.Mælar verði 2,5 cl.Núna er leyfilegt að hafa einfaldann sjúss, 2, 3, 4 eða 6 Cl. en áður var einfaldur alltaf 3 centilítrar. Á mörgum veitingastöðum kemur hins vegar ekki fram hvað felst í einföldum skammti þótt reglugerð kveði á um að svo eigi að vera ljóst kaupandanum. Neytendastofa vinnur að því að breyta þessu aftur til einfaldara forms. „Í dag eru leyfðar fjórar sjússastærðir en algengast er að þær séu tvær og við viljum hafa þær tvær eða margfeldi af tveimur stærðum“, segir Tryggvi. Með því er átt við að einfaldur yrði 2,5 og tvöfaldur cl. Auðvelt yrði þá að kaupa stöðluð CE merkt mælitæk eða sjússamæla sem eru löggildir af Evrópusambandinu. Veltan mikil á markaðnum„Við erum að vinna drög að reglugerðarbreytingu fyrir stjórnvöld, í ágætu samstarfi við samtök ferðaþjónustunnar, um að breyta þessu“. Hann segir enn meiri ástæðu núna til að koma þessum hlutum í lag. „Þegar miklu fleiri gesti ber að garði þá er mikilvægara að fylgja öllum reglum og það er mikil velta á þessum markaði og þetta er dýr vara og mjög mikilvægt að þá sé mælt rétt“, sagði Tryggvi.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira