FBI heldur úti nákvæmum gagnabanka um slangur á netinu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. júní 2014 11:47 Höfuðstövðar FBI.
Bandaríska alríkislögreglan FBI heldur úti gagnabanka þar sem internet-slangur er kortlagt. Um er að ræða skjal sem er 83 blaðsíður að lengd og nær yfir tæplega 3000 slanguryrði, að stórum hluta skammstafanir yfir hina ýmsu hluti. Skjalið var gert opinbert eftir fyrirspurn hóps sem kallar sig Muckrock. Það tók hópinn sex mánuði að fá skjalið sent, en þeir vísuðu í upplýsingalög sem eru í gildi í Bandaríkjunum. Skjalið er mjög ítarlegt og má þar finna útskýringar yfir skammstafanir eins og BOGSAT (sem stendur fyrir „bunch of guys sitting around talking“, eða „nokkrir strákar saman í hóp að tala“), DITYID (sem stendur fyrir „did I tell you I‘m depressed“, eða „var ég búinn að segja þér að ég er þunglyndur“) og NIFOC (sem stendur fyrir „naked in front of computer“ eða „nakinn fyrir framan tölvuna“). Margar af þeim skammstöfum og því slangri sem FBI kortleggur er notað í litlum samfélögum á netinu og hefur stofnunin verið gagnrýnd fyrir að eyða tíma sínum í að rannsaka þetta svona gaumgæfilega. Netdeild FBI tók listann saman og í tölvupósti frá henni til starfsmanna kom fram að skjalið gæti nýst þeim til þess að vita hvað börn þeirra og barnabörn væru að gera á netinu. Skjalið er Twitter-shorthand, en þrátt fyrir nafnið kemur fram að skjalið sé ekki eingöngu yfir slangrið sem notað er á samskiptamiðlinum Twitter, en einnig Facebook og Myspace. Í skjalinu eru slanguryrði sem hafa verið notuð sjaldnar en tuttugu sinnum í átta ára sögu Twitter.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira