Ruslamálið á Suðureyri: "Við erum í þröngu og erfiðu svæði þarna“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 18. júní 2014 15:33 Lykt af rusli berst inn til íbúa hússins. Myndir/Úr einkasafni
Ísafjarðarbær brást skjótt við frétt Vísis um að íbúar á Suðureyri væru orðnir brjálaðir á að rusl flæddi upp úr tunnum og að lykt bærist inn í húsakynni íbúa. Fór starfsmaður bæjarins með auka ruslatunnu til íbúanna sama dag og fréttin birtist. „Ég tel mig samt ekki hafa átt að sjá um þessa hluti. Ekki öðruvísi en ég sé um leigjendur mína,“ segir Marzellíus Sveinbjörnsson umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar. Hann vísar ábyrgðinni yfir á verktakann sem sér um að taka ruslið í bænum, Kubb ehf. „Þeir bera ábyrgð á því að það sé nóg af ruslatunnum og ruslið sé tæmt á réttum tíma. Kubbur hefði átt að bæta við tunnum,“ útskýrir Marzellíus. „Ég fór sama dag og fréttin birtist til Kubbs og spurði hvort að þeir hefðu raunverulega séð yfirfullar ruslatunnur og ekkert aðhafst.“ En stranda ekki viðbrögð verktakans á því að þið hjá Ísafjarðarbæ eruð ekki tilbúin til að auka fjárútlát vegna sorphirðu á svæðinu?„Nei. Það ætti engan veginn að stranda á fjárútlátum. Það hefur aldrei komið inn á borð til mín. Aldrei,“ fullyrðir Marzellíus.Samfélagsleg skylda íbúa að tryggja að pokar liggi ekki um alla lóð Vandamálið á sér margar hliðar að sögn Marzellíusar. Það á rætur sínar að rekja til þess að ákveðið var að taka upp flokkun á rusli í sveitarfélaginu, breytt var um tunnur og þá komust þær ekki lengur fyrir í þartilgerðu ruslatunnurými við raðhúsið. „Á þessum stöðum er erfitt um vik af því að það er ofboðslegur snjóþungi í sveitarfélaginu. Þetta ergelsi byrjar eflaust á því að það er ekki hægt að taka ruslið vegna snjóþunga,“ útskýrir Marzellíus. Hann segist hafa sent sérstakan mann á svæðið til þess að moka snjónum í burtu þegar svo ber undir. „Á margan hátt er þetta skiljanlegt, við búum á hjara.“ Hann segir þó unnið að því að koma skikki á ruslamál íbúa, aukatunnan sé aðeins til þess að brúa bilið á meðan beðið er eftir lausn. „Málið er í ferli sem ég vona að allir geti sætt sig við. Við ætlum að fá arkitekt til þess að teikna einingu fyrir rusl allra íbúa hverfisins og setja hana mögulega á umferðareyju í miðju þess,“ útskýrir hann en viðurkennir þó að arkitektinn sé ekki byrjaður á verkinu. Hann hafi þó farið með manni frá Sorpu til þess að gera úttekt á svæðinu og leysa vandamálið. „Við erum í þröngu og erfiðu svæði þarna.“ Arkitektinn komi svo með hönnun sem fari að lokum fyrir nefnd í bænum sem þurfi að samþykkja. Því gætu íbúarnir þurft að bíða nokkra stund enn. En Kolbrún Elma Schmidt, íbúi sem hefur þurft að þola ólykt og lélega umgengni, kveðst hafa haft samband vegna vandamálsins fyrst í september á síðasta ári. „En auðvitað hvílir á henni viss samfélagsleg skylda að setja ruslapokana í svarta ruslapoka ef ruslið er fullt og setja við hliðina á tunnunni. Svo að það liggi ekki pokar út um alla lóð. Það geri ég heima hjá mér,“ segir Marzellíus. „Svo getur hún líka rúllað tunnunum frá inngangnum og sett í læsingu.“
Tengdar fréttir Ruslamál í ólestri: "Skoppandi ormar milli barnavagns og ruslatunna“ "Við erum orðin alveg brjáluð,“ segir Víkingur Kristjánsson, leikari, en bæjaryfirvöld á Ísafirði hafa ekkert gert í málinu í 9 mánuði. 16. júní 2014 15:25 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira
Ruslamál í ólestri: "Skoppandi ormar milli barnavagns og ruslatunna“ "Við erum orðin alveg brjáluð,“ segir Víkingur Kristjánsson, leikari, en bæjaryfirvöld á Ísafirði hafa ekkert gert í málinu í 9 mánuði. 16. júní 2014 15:25