Dæmdur í fimm ára fangelsi: Stakk mann rétt fyrir ofan hjartastað 4. júlí 2014 10:40 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Tvítugur maður var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir tilraun til manndráps. Þá þarf hann að greiða eina og hálfa milljón króna í miskabætur. Maðurinn, sem heitir Leon Baptiste, stakk annan mann rétt fyrir ofan hjartað þann 30. mars síðastliðinn. Hann viðurkenndi að hafa stungið manninn fyrir dómi, en vildi ekki meina að þetta hefði verið tilraun til manndráps. Hnífsstungan átti sér stað heima hjá systur Leons og var maðurinn sem var stunginn gestur þar, ásamt kærustu sinni. Leon viðurkenndi fyrir dómi að hafa neytt eiturlyfja kvöldið sem hnífsstungan átti sér stað og telur geðlæknir að hann hafi þjáðst af aðsóknarkennd vegna neyslunnar. Þó kom fram í dómsorði að geðlæknir taldi Leon sakhæfan.„Hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum“ Samkvæmt vottorði sérfræðings í bráðalækningum, sem notað var fyrir dómi, munaði eingöngu örfáum sentímetrum að stungan hefði lent í hjarta mannsins. Hann var með stunguáverka á brjósti, um 1,5 sentímetra langan og 6 sentímetra vinstra megin við miðlínu, beint yfir hjartastað. Við þreifingu fannst loftbrjóst, sem getur verið hættulegt ástand. Í vottorðinu segir að aðeins hafi munað örfáum sentímetrum að hnífslagið hefði náð til hjartans „og þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.“ Í dómsorði er einnig sagt frá vitnisburði geðlæknis í málinu. Geðlæknir framkvæmdi geðrannsókn á hinum ákærða sem var lögð fyrir dóm. Í skýrslu kemur fram að hegðun Leons megi rekja til eiturlyfjanotkunar. Læknirinn telur að Leon hafi þjáðst af aðsóknarkennd, en hana hafi mátt rekja til eiturlyfjanotkunar. Nokkrir dagar voru á milli viðtala læknisins við Leon og merkti geðlæknirinn mun á fasi Leons eftir því sem á leið og var Leon orðinn „alveg eðlilegur“ nokkrum dögum eftir fyrsta viðtalið, eins og kemur fram í dómsorði. Því taldist hann vera saknæmur.Viðurkenndi stunguna Leon viðurkenndi við þingfestingu í málinu að hafa stungið manninn, en taldi sig ekki hafa ætlað að myrða hann. Fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa neytt kannabisefna, tekið svokallaðar rívó-pillur auk þess að hafa tekið inn amfetamín. Hann sagði neysluna ekki hafa verið stöðuga en „eitthvað inn á milli“ í um tvær vikur. Leon segir að hann hafi hitt manninn, sem hann kannaðist við, heima hjá systur sinni. Maðurinn hafi „verið á iði“ og verið æstur. Leon sagði frá því að maðurinn hafi hvolft úr poka sínum á borð eftir að hann kom. Þá segist Leon hafa beðið manninn um að yfirgefa íbúðina. Í dómsorði er vitnað í vitnisburð Leons og þar segir: „Hann segist ekki hafa ætlað sér að meiða manninn eða drepa hann, enda hefðu þeir ekki átt í neinum útistöðum. Geti hann ekki skýrt af hverju hann gerði þetta.“„Tala út frá sér“ Þar kemur einnig fram að Leon segist „ekkert svo“ muna að hafa stungið manninn og geti ekki munað til þess að hafa sótt hnífinn. Eftir að hafa stungið manninn hafi allt farið í uppnám og kveðst Leon hafa beðið hinn stungna afsökunar. Leon segist hafa verið „raunveruleikafirrtur“ og hrærst í „einhverjum draumaheimi“. Leon lýsti því að honum hafi fundist að aðrir væru að „tala út frá“ sér. Hann útskýrði það þannig að honum hafi þótt maðurinn hafa sagt eitthvað sem Leon hafi verið að hugsa. Hafi honum þótt stafa ógn af þessu.Engin læti Maðurinn sem var stunginn, kærasta hans og systir hins ákærða báru öll vitni í málinu. Ekkert þeirra kannaðist við nein læti fyrir hnífsstunguna og virðist hún hafa komið eins og þruma úr heiðskýru lofti. Maðurinn sem var stunginn segir frá því að hann hafi ekki orðið var við hnífinn fyrr en búið var að stinga hann. Í dómsorði segir: „Allt hafi farið í uppnám og kærasta hans tekið hnífinn og fleygt honum eitthvað frá. Ákærði hafi þó látið eins og ekkert hefði gerst og verið mjög rólegur. Hann segir ákærða hafa hjálpað sér á fætur og sagt: „Þetta er allt í lagi“. Eftir dálitla stund hafi hann fundið fyrir öndunarerfiðleikum og þá verið hringt í sjúkrabíl. Hann segist ekki hafa verið með neinn ófrið þarna áður í íbúðinni og ekki verið beðinn að fara þaðan.“ Systir hins ákærða segist hafa talað við hann fyrr um kvöldið sem verknaðurinn gerðist. Hún segist hafa fundið fyrir því að honum hafi ekki liðið vel. Hann hafi viljað hitta hana og hafi hann komið heim til hennar. Hún segir manninn sem var stunginn og kærustu hans hafa verið á förum þegar Leon kom til hennar. Hún segist ekki hafa séð hnífsstunguna en í vitnisburði hennar kemur fram að ekki komi aðrir til greina að hafa stungið manninn, annar en bróðir hennar. Hún segir að engin læti hafi verið í íbúðinni áður en hnífsstungan hafi átt sér stað.Fimm ára fangelsi Í niðurstöðu dómsins segir að sannað sé með játningu ákærða, sem studd er framburði vitnanna á vettvangi, svo og staðfestu læknisvottorði í málinu að Leon hafi veist að manninum með hnífi og stungið hann á hol í brjóstið, beint í hjartastað. „Verður að telja að hending hafi ráðið því að hnífurinn gekk ekki inn í hjartað. Jafnframt hlaut ákærða að vera ljóst að langlíklegast væri að maðurinn dæi haf hnífsstungi í þennan stað.“ Við ákvörðun refsingar var tekið fram ða Leon hafi játað verknaðinn greiðlega. Hæfileg refsing hafi því verið fimm ára fangelsi, en frá þeirri vist dragast þeir 95 dagar sem hann sat í gæsluvarðhaldi. Honum ber einnig að greiða manninum sem hann stakk eina og hálfa milljón í miskabætur. Annar kostnaður sem Leon þurfti að greiða vegna málsins er um ein og hálf milljón króna.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Fleiri fréttir Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sjá meira