Lúsaplága herjar á lax í Noregi Jakob Bjarnar skrifar 4. júlí 2014 12:29 Menn hafa misst tökin á laxalúsinni sem hefur myndað ónæmi gegn öllum lyfjum. Á meðfylgjandi mynd getur að líta sundurétinn lax, eftir að hann hefur lent í laxalús. Sigurður Guðjónsson segir sjóbirtinginn í hættu. hitra-froya.no
Laxalús herjar nú á laxaeldi í Noregi, og er óhætt að tala um plágu. Menn hafa þungar áhyggjur af stöðu mála, og þá ekki síst villtum stofnum sem er hætta búin og því að þessi plága gjósi upp hér á landi. Menn hafa lengi haft áhyggjur af laxalúsinni en svo hafa verið menn sem gefa lítið fyrir þá hættu sem geta verið henni samfara. En, Norðmenn eru nú í standandi vandræðum og þessi svæsna plága getur hæglega komið upp hér við strendur.Menn að missa tökinNorskir vefmiðlar birta skelfilegar myndir þar sem sjá má sundurétna laxa. Í Þrándheimi hafa fundist 50 til 100 lýs á hverjum laxi sem til rannsóknar hefur verið hjá norsku hafrannsóknarstofnunni. Mikil hætta er á að þessi faraldur smitist yfir í villta stofna og er talið að stofn sjóbirtings geti hrunið. Veiðimálastofnun fylgist vel með gangi mála í Noregi en forstjóri er Sigurður Guðjónsson. „Þetta getur orðið svæsið og er vandamál víða um heim. Menn eru að missa tökin á þessu. Lyfin sem menn hafa notað við lúsinni eru hætt að virka, hún hefur myndað ónæmi. Þannig að þetta er snúið,“ segir Sigurður. „Laxalús hefur lengi verið vandamál í fiskeldi og ef það fer úr böndunum verður smit á nálægum villtum stofnum mikið.“Sjóbirtingurinn útsettur fyrir smiti Sigurður segir hætt við því að þar sem mikið laxeldi er geti gosið upp laxalúsafaraldur. Og þess vegna hér, sem annars staðar. Og menn verði að fylgjast vel með laxeldi í sjókvíum. En fátt er til ráða. „Það verður að reyna að halda lúsinni niðri í eldinu og það er best gert með því að hvíla svæðin reglulega svo lúsin nái sér ekki á strik.“ Flestir veiðimenn þekkja laxalús á nýgegnum laxi, en 50 til 100 kvikindi á einum laxi er mikið? „Jú, það er farið að valda fiski verulegum skaða og náttúrlega seyðum; þau geta hæglega drepist við mikið smit.“ Og, sjóbirtingur er í stórhættu. „Það sem gerir sjóbirtinginn sérstaklega útsettan er að hann fer að sumarlagi með ströndinni, þá inná og í kringum fiskeldisvæði, og verður þar af leiðandi fyrir miklu smiti.“
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira