Pólitísk átök í bankaráði Seðlabankans Heimir Már Pétursson skrifar 4. júlí 2014 13:08 Lára V. Júlíusdóttir fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans segir gott að Ríkisendurskoðun hafi komið fram með leiðbeiningar varðandi verklagsreglur fyrir bankaráðið.
Fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans segir að umboð hennar til að ganga frá málum varðandi málaferli seðlabankastjóra gegn bankanum vegna launakjara hans, hafi ekki verið dregið í efa fyrr en nýtt bankaráð sem skipað var eftir ríkisstjórnarskipti tók við. Póltík og persónulegar erjur hafi haft mikil áhrif á þessi mál. Lára V. Júlíusdóttir var formaður bankaráðs Seðlabankans á miklum umbrotatímum eftir að Davíð Oddsson, Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason voru settir af sem seðlabankastjórar með lagasetningu nýrrar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir á vormánuðum 2009. Núverandi bankaráð Seðlabankans hefur gert þá ákvörðun Láru tortryggilega að láta Seðlabankann standa undir málskostnaði Más Guðmundssonar núverandi seðlabankastjóra vegna ágreinings um hvort kjararáð gæti lækkað laun hans á skipunartíma hans. Ríkisendurskoðun hefur skilað bankanum skýrslu um málið þar sem segir að skort hafi á verklagsreglur í bankaráði um mál sem þessi en eðlilegt megi telja að Lára hafi séð um þessi mál sem formaður ráðsins. Lára segir gott að skýrsla Ríkisendurskoðunar sé komin fram. Hún feli í sér leiðbeiningar sem skort hafi á. „Niðurstaðan er svosem sú að ákvörðun sem þessi getur farið fyrir og hefði þurft að fara fyrir bankaráð. Það er kannski það sem maður taldi ekki algerlega nauðsynlegt. Sérstaklega miðað við þá stöðu sem málið var í upphaflega,“ segir Lára. Lögum um Seðlabankann hafi verið breytt í tvígang á þessum tíma sem hafði áhrif á stöðu seðlabankastjórans og gert hann vanhæfan í tilteknum málum. „Og þá var það formaður bankaráðs sem var sá aðili sem þurfti og varð að hlaupa undir bagga. Spurningin um hver réttarstaða formanns bankaráðs er undir svona kringumstæðum hefur ekkert verið svarað. Lögin gefa engar leiðbeiningar um það. Þetta var kannski sá vandræðagangur sem maður átti í og taldi sig vera að gera rétt allan tímann,“ segir Lára. Spurningar um umboð hennar til að ganga frá málum varðandi Má Guðmundsson hefðu aldrei vaknað á þessum tíma og ekki verið dregið í efa að formaður bankaráðs hefði þær heimildir sem þurfti til að ganga frá þessum málum. Það hafi ekki gerst fyrr en núverandi bankaráð tók við.Sýnist þér eftirmál þessa alls, eftir að þú hættir í bankaráðinu, að þetta lykti af einhvers konar pólitík?„Já, ég verð að viðurkenna það. Þetta var líka þannig að þetta voru mjög einkennilegar aðstæður sem maður kom inn í sem bankaráðsformaður í rauninni örfáum vikum eftir að þessir þrír bankastjórar gengu þaðan út. Og það var ýmislegt í upphafi og í rauninni kannski allan tímann sem ég var formaður bankaráðs, sem var mjög sérstakt fyrir bankaráð og þann sem var í forsvari þar. Allt öðruvísi en áður hafði verið að því að mér er tjáð og hugsanlega koma svona tímar aldrei aftur,“ segir Lára.Að það hafi verið einhverjar pólitískar fléttur þarna að baki?„Já og alls konar ágreiningur sem ég veit ekki hvort að er kannski bara beint flokkspólitískur. Það er svona ágreiningur sem ristir kannski dýpra,“ segir Lára V. Júlíusdóttir fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Fleiri fréttir Loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sjá meira