„Við erum búnir að gefa út fjórar plötur og þær líta allar eins og út. Fyrsta var bleik, önnur blá, síðan græn og loks appelsínugul og allar með svörtu letri. Það eru þrettán lög á hverri og það er teiknuð mynd við hvert lag. Við komumst að því að það eru fjórar sortir í spilastokk og þrettán spil í hverri þannig að við tókum allar myndirnar saman og gerðum spilastokk. Á tónleikunum drögum við síðan um hvaða lög við spilum og spilum lögin í þeirri röð sem við drögum,“ segir Snæbjörn. Hann segir þó að hálfvitarnir spili ekki öll 52 lögin á hverjum tónleikum heldur um það bil helming.
„Þetta er góð hugmynd – alveg þangað til við förum að framkvæma hana. Við getum ekkert æft fyrir þetta. Yfirleitt getur maður kortlagt svona tónleika og veit sirka hvað maður er að fara að gera næst. Núna eiga menn eflaust eftir að klóra sér í hausnum. Það er ekkert öruggt að við kunnum öll þessi lög þannig að nokkur verða eflaust býsna „freestyle“.“
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir var stofnuð árið 2006 og er skipuð níu manns sem kunna passlega mikið á hljóðfæri að sögn Snæbjörns.
„Við erum búnir að vera saman í bandi í átta fokking ár án þess að skipta um mannskap. Þetta er stórbrotinn félagsskapur. Þarna koma allir gallar mannkynsins saman á einum stað.“